Lífið

Lækna-Tómas lenti í „óvæntri rassrifu“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Tómas með sundskýluna sálugu í höndunum.
Tómas með sundskýluna sálugu í höndunum. Facebook/Tómas Guðbjartsson
„Slysin gera ekki boð á undan sér. Í vikunni var ég á leið í minn 2 km sundsprett þegar vinsamlegur maður hljóp á eftir mér og sagði það “borgaralega skyldu sína að láta mig vita”. Ég var þá við að stinga mér til sunds - og hélt að hér væri kominn virkjunarsinni sem vildi mig feigan. En ástæðan var sú að þjóhnappar mínir voru til sýnis í gegnum risa saumsprettu á Arena sundbuxunum.“

Svona hefst Facebook-færsla sem læknirinn Tómas Guðbjartsson, oft þekktur sem Lækna-Tómas, birti á Facebook fyrr í vikunni. Færslan ber yfirskriftina „Óvænt rassrifa í Vesturbæjarlaug.“ Þar lýsir hann atviki sem helst mætti lýsa sem pínlegu. Tómas heldur áfram:

„Ég trúði þessu ekki þar til ég þreifaði á mínum kæru gluteus maximus - og fann strax að húð mætti húð. Mér til frekari hryllings rakst ég á líffæri sem eiga að vera framar á líkamanum. Ég þakkaði kærlega fyrir og bakkaði inn í sturtuklefann með lófana fyrir aftan bak. Ákvað að þakka meðborgara mínum á ensku - enda minna trauma að þykjast vera útlendingur við svona pínlegar aðstæður,“ skrifar Tómas, og bætir við að hrakfarir hans hafi ollið öðrum sundgestum í klefanum mikilli kátínu.

Allt fór þó vel að lokum, þar sem Tómas gat leigt sér sundskýlu „án sleppibúnaðar,“ og haldið út í laug.

Að lokum skrifar Tómas:

„[Ég] er þakklátur fyrir eftirfarandi:

Að það var myrkur

Að ég fór ekki fyrst í pottinn

Að það voru aðallega útlendingar í sundi

Að borgarar þessa lands virði skyldur sínar.“

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.