Lífið

Íslenskur markþjálfi hefur stundað kynlíf með eiginmanninum 4000 daga í röð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Matthilda Gregorsdóttir lifir góðu kynlífi með eiginmanni sínum á hverjum degi og það hafa þau gert í 11 ár.
Matthilda Gregorsdóttir lifir góðu kynlífi með eiginmanni sínum á hverjum degi og það hafa þau gert í 11 ár. mynd/Evolvia
Mathilda Gregorsdóttir hefur stundað kynlíf á hverjum degi síðustu 11 ár og segir það hafa gjörbreytt sambandi sínu við manninn sinn. Þetta kemur fram í þættinum Undir yfirborðinu á Hringbraut en þátturinn er í umsjón Ásdísar Olsen.

Mathilda er markþjálfi og skólastýra Evolvia en í þættinum ræðir hún kynlíf sitt og eiginmannsins. Saman hafa þau stundað kynlíf daglega síðan árið 2008 eða í fjögur þúsund daga í röð.

„Ég og maðurinn minn höfum verið gift núna í 25 ár og fyrir 11 árum síðan kemur hann með grein sem mælir með því að stunda kynlíf daglega,“ segir Mathilda í þættinum og vefsíða Fréttablaðsins greinir frá.

„Þetta var árið 2008 og við erum enn að,“ segir Mathilda

„Ég er búin að upplifa fullt af mismunandi fullnægingum á mismunandi hátt og geng um í einhverskonar alsælu eftir það.“

Hún segist hafa verið í leit að fólki til að deila reynslu sinni með og ræða þetta. Hún kynntist slíkri vinnu erlendis og hefur verið að halda utan um slíka hópa hér á landi.

Aðspurð hverju þetta hefur breytt fyrir þau hjón leitar Mathilda að orðunum:

„Vá! Það er eins og báðir okkar líkamar séu að opnast. Ég get varla lýst því.“

Hún segist oft hafa kvartað yfir því að fá ekki næga snertingu í sambandinu. En nú þegar þau hjónin mætist í kynlífi einu sinni á sólarhring sé hún fullnærð, alla daga.

Svo þegar þau eru í fýlu, ósátt hvort við annað, þá þurfa þau að sleppa tökunum á því til að geta mæst í kynlífi. Enda séu þau búin að ákveða að stunda kynlíf. Samband þeirra verði betra fyrir alla í kringum þau.

Hér að neðan má sjá þáttinn en umræðan um kynlíf Mathildu hefst þegar 23 mínútur eru liðnar af þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.