Lífið

Vilborg Arna reif magavöðva á dansæfingu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vilborg Arna er með rifinn magavöðva en stefnir á að dansa í þættinum á föstudag.
Vilborg Arna er með rifinn magavöðva en stefnir á að dansa í þættinum á föstudag. Samsett/Instagram/Vísir-Vilhelm
Fjallgöngukonan og pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir slasaðist á síðustu æfingunni fyrir annan þátt Allir geta dansað sem sýndur var á föstudag. Á fimmtudaginn byrjaði Vilborg að finna til eftir að hafa verið að æfa með dansherra sínum, Javi Fernández Valiño. Hún lét verkinn ekki stoppa sig og steig á svið daginn eftir í beinni útsendingu.

„Ég veit að þetta gerðist í einhverri lyftu, við vorum að æfa lyftur á æfingunni“ segir Vilborg Arna í samtali við Vísi. ABBA þema var í þættinum á föstudag og dönsuðu Javi og Vilborg Arna Jive við lagið Mamma Mia.

Vilborg Arna sagði frá meiðslum sínum á Instagram.Skjáskot/Instagram
„Ég var náttúrulega að drepast en ég var búin að vera með kælipoka og reyndi að koma þessu frá svona sómasamlega. Mér var illt en mér leið vel og fannst alveg gaman.“  Hún harkaði af sér en leitaði á bráðamóttökuna daginn eftir.

„Þá var komið eitthvað rif í magavöðva þannig að ég segi bara að ég sé komin með sjö-pack í staðinn fyrir sixpack,“ segir Vilborg Arna kát.

„Auðvitað eru ráðleggingarnar þannig að maður eigi ekki að vera að gera mikið og helst ekki neitt. Við erum að reyna að vinna í kringum þetta, ég geri bara eins og ég get. Kannski þegar að aðeins frá líður er hægt að breyta því.“

 

Vilborg og Javi á æfingu.vísir/vilhelm
Vilborg og Javi enduðu í næstsíðasta sæti eftir atkvæði dómara og símakosningu og voru því ekki send heim. Vilborg segir að hún stefni á að dansa á föstudaginn, ef líkaminn leyfir. Næst munu þau dansa tangó á föstudag.

„Ég er búin að vera að grínast með að ég ætli að dansa bara aðeins meira með fótunum.“

Vilborg var á dansæfingu þegar fréttastofa náði tali af henni og segist hún aðlaga æfingarnar í kringum þessi meiðsli. Hún segir að ferlið í þessari keppni hafi verið mjög skemmtilegt en mýkt hafi reynst henni góð áskorun. 

„Mér finnst gaman að læra margt nýtt og maður er að uppgötva hluti um sjálfan sig sem að maður hefur aldrei annars fattað um líkamsgerð og hreyfigetu.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.