Lífið

Ólafur Örn slasaðist á fæti en er nú farinn að æfa á fullu með Mörtu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur og Marta klár í slaginn.
Ólafur og Marta klár í slaginn. vísir/vilhelm
Skemmtiþátturinn Allir geta dansað hefur göngu sína á Stöð 2 á nýjan leik þann 29. nóvember.

Tíu pör taka þátt og stendur eitt par eftir sem sigurvegari í lok janúar á næsta ári.

Næstu fimm daga verða öll pörin í Allir geta dansað kynnt til leiks og er komið að því að kynna dansparið Ólaf Örn Ólafsson og Mörtu Carrasco.

Ólafur er helst þekktur fyrir hæfileika sína í eldhúsinu og hefur hann vakið athygli fyrir fína kokkaþætti. Hann starfar á því sviði og einnig sem veitingarmaður. Ólafur slasaðist nokkuð illa á fæti á dögunum og var lengi að geta byrjað að æfa. Hann er í raun nýbúinn að losna við spelkur og nú eru æfingar aftur á móti hafnar á fullu og er Marta að kenna honum extra hratt og fagmannlega.

Marta Carrasco er nýliði í hópi fagdansara og því þarf hún að sanna sig algjörlega frá grunni. Það er því mikið undir í fyrsta þættinum hjá þessum glaðlynda pari. Bara spurning hvort Ólafur verði heill fyrir föstudaginn og hvort Marta nái að kenna honum atriðið nægilega vel.

Dómarar í ár verða þeir sömu og í fyrstu seríunni:

• Selma Björnsdóttir

• Karen Reeve

• Jóhann Gunnar Arnarson

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis leit við á æfingu hjá Ólafi og Mörtu í World Class í vikunni og fangaði stemninguna hjá dansparinu.

Æfingar byrjaðar og Marta er farin að láta Ólaf finna fyrir því.vísir/vilhelm
Ólafur virkar í hörku standi.vísir/vilhelm

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.