Lífið

Margir af helstu leikurum Íslands hreinsuðu allt út úr húsi Gísla og Nínu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fengu mjög fína aðstoð frá vinum og vandamönnum.
Fengu mjög fína aðstoð frá vinum og vandamönnum.
Leikarahjónin Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir tóku þá ákvörðun á árinu að taka hús sitt við Nesveginn á Seltjarnarnesinu alfarið í gegn frá a-ö.

Gulli Byggir fylgist með verkefninu á Stöð 2 og var fyrsti þátturinn um framkvæmdirnar á dagskrá Stöðvar 2 í gær. Hjónin hafa búið í húsinu í fjögur ár en urðu að flytja út úr því á meðan framkvæmdunum stendur.

Þegar framkvæmdir hófust var búið að endurhanna húsið og gera nýjar teikningar. Eitt af því sem átti að gera var að stækka húsið í áttina að sjónum og koma einnig fyrir risastórum glugga sem er um fimm metrar á breidd og yfir tvo metra á hæð. Áætlun sem engum leist í raun vel á þar sem veðráttan er ekki alltaf nægilega góð svona upp við sjó.

Einnig átti að grafa niður fyrir innbyggðum sófa í stofunni.

Þau Gísli og Nína fengu marga af helstu leikurum þjóðarinnar einn daginn á svæðið til að rusla gjörsamlega öllu út úr eigninni og má sjá brot úr þætti gærkvöldsins hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.