Lífið

Gulli og Eva tóku Upp til hópa með Herra Hnetusmjör: „Eins vandræðalegt og það verður“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gummi Ben og Gulli voru saman í liði.
Gummi Ben og Gulli voru saman í liði.
Í þætti gærkvöldsins af Ísskápastríðinu mættu þeir Gulli Helga og Albert Eiríksson sem hafa báðir komið við sögu í þáttunum áður og kannski ekki beint staðið undir væntingum.

Albert og Eva Laufey mynduðu saman sterkt teymi sem keppni á móti öðru góðu liði með þeim Gumma Ben og Gulla.

Þegar liðin báru fram eftirréttina kom upp skemmtilegt atvik þegar umræðan barst að hnetusmjöri.

Þá fór Gulli Helga í stellingar og rappaði hluta úr lagi Herra Hnetusmjörs. Lagið vinsæla Upp til hópa. Eva Laufey gerði slíkt hið sama síðar í þættinum. Gumma Ben þótti það reyndar mjög vandræðalegt. 

Hér að neðan má sjá atriðið sjálft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.