Lífið

Meghan Markle opnar sig í einlægu viðtali

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Meghan Markle segir að bak við tjöldin hafi hún átt erfitt síðustu mánuði, vegna umfjöllunar fjölmiðla.
Meghan Markle segir að bak við tjöldin hafi hún átt erfitt síðustu mánuði, vegna umfjöllunar fjölmiðla. Skjáskot/Twitter

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex opnar sig í einlægu viðtali hjá breska miðlinum ITV, sem sýnt verður á morgun. Viðtalið er hluti af heimildarmyndinni Harry & Meghan: An African Journey.



Í stuttri stiklu sem búið er að birta, talar Meghan um líf sitt eftir að hún kynntist eiginmanni sínum Harry. Þar segir hún að fjölmiðlaumfjöllunin hafi aukið mikið á pressuna, sem sé sérstaklega erfitt því hún var nú þegar berskjölduð á meðgöngu og sem nýbökuð móðir.



Hún heldur aftur tárunum þegar hún segir að þetta hafi verið virkilega erfitt. Hún þakkaði fréttamanninum Tom Bradby hugulsemina og sagði „Fáir hafa spurt hvernig mér líður.“



Sagt er að í viðtalinu ræði Meghan um móðurhlutverkið, hjónabandið og lífið sem opinber persóna, en Meghan hefur upplifað gagnrýni og mikla fjölmiðlaumfjöllun frá byrjun sambandsins. Hertogahjónin hafa bæði kært breska fjölmiðla.

Stiklu fyrir viðtalið má sjá hér að neðan.

Harry sagði í einlægri tilkynningu á dögunum, að ákveðnir miðlar hafi lagt Meghan í einelti og þessi málsókn hafi verið það eina rétta í stöðunni.



„Minn helsti ótti er að sagan endurtaki sig. Ég hef séð hvað gerist þegar einhver sem ég elska er gerður að verslunarvöru upp að því marki að ekki er lengur komið fram við þá sem raunverulega manneskju. Ég missti móður mína og nú horfi ég á konuna mína verða fórnarlamb sömu sterku afla.“  

Lengri stiklu fyrir myndina má sjá hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Sá Meghan lekann fyrir?

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, geymdi afrit af persónulegu bréfi sem hún sendi föður sínum, Thomas Markle, sem síðar var lekið í fjölmiðla.

Alvarlegar ásakanir Harrys á hendur götublöðunum

Harry Bretaprins heldur því fram að bresk götublöð hafi leynt eða eytt sönnunargögnum um það hvernig þau komust yfir upplýsingar um hann, vini hans og ráðgjafa með ólöglegum aðferðum.

Bretaprins höfðar mál gegn the Sun

Hertoginn af Sussex, Harry Bretaprins, hefur fetað í fótspor eiginkonu sinnar, Meghan Markle, og hefur höfðað mál gegn eigendum fjölmiðlanna the Sun, the Daily Mirror og blaðinu News of the World, sem lagði upp laupana 2011, vegna meintra innbrota í síma prinsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.