Lífið

Er að fara að skemmta en veit ekki hvar né fyrir hvern

Jakob Bjarnar skrifar
Þorsteinn veit að hann er að fara að skemmta á morgun og það á að vera klukkan 16. En, hvar og fyrir hvern hefur hann ekki hugmynd um.
Þorsteinn veit að hann er að fara að skemmta á morgun og það á að vera klukkan 16. En, hvar og fyrir hvern hefur hann ekki hugmynd um. fbl/Heiða
Þorsteinn Guðmundsson, leikari og skemmtikraftur, birti sérkennilega tilkynningu, eða auglýsingu, á Facebookvegg sínum nú rétt í þessu. Þar óskar hann þess að sá sem pantaði hann til að vera með uppistand gefi sig fram.

„Stendur á dagatalinu að ég verði með uppistand á morgun kl. 16 og að það hafi verið pantað í gegnum Facebook. Málið er að ég hef ekki grænan grun um hvar eða fyrir hvern,“ segir Þorsteinn.

Hann segist afar þakklátur ef einhver kannaðist við málið og gæti upplýst hann um þetta. Og lofar því jafnframt að hafa dagbókarfærslur sínar skilmerkilegri í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.