Lífið

„Eins og að láta NASA ekki vita af því að þú ætlir að sprengja tunglið í loft upp“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Trevor Noah var harðorður í garð Trumps í þætti sínum í nótt.
Trevor Noah var harðorður í garð Trumps í þætti sínum í nótt. SKjáskot/Youtube
Spjallþáttastjórnendur í Bandaríkjunum gerðu sér í nótt mat úr nýjust ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að draga um þúsund hermenn Bandaríkjanna frá Sýrlandi. Háðfuglarnir túlka ákvörðunina sem svik forsetans við Kúrda.

Ákvörðunin var tilkynnt skyndilega í gærkvöldi eftir símtal á milli Trump og Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands.

Trevor Noah, stjórnandi The Daily Show, sagði Trump taka hina „sviksamlegu“ ákvörðun í viðleitni til að stýra kastljósi fjölmiðla frá „Úkraínuhneykslinu“. Um helgina steig annar uppljóstrari fram sem segist búa yfir frekari upplýsingum um símtal Trumps og forseta Úkraínu, þar sem sá fyrrnefndi þrýsti á forsetann að rannsaka Joe Biden, einn helsta andstæðing Trumps.

„Ef þú stæðir frammi fyrir umfangsmesta vanda forsetatíðar þinnar, hvað myndirðu gera? Fara líklega með veggjum og einbeita þér að því að slökkva eldinn. En, sjáðu til, þú ert ekki Donald Trump, vegna þess að ef þú værir Donald Trump myndirðu kveikja glænýjan eld,“ sagði Noah.

„Ókei. Þetta er hreinlega sturlað. Trump forseti tilkynnti klukkan ellefu í gærkvöldi – klukkan ellefu – að Bandaríkin myndu draga her sinn út úr lykilhluta Sýrlands. Og hann sagði Pentagon [höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins] ekki frá því, sem gerir það enn brjálaðra. Þetta kom þeim algjörlega á óvart. Þetta er eins og að láta NASA ekki vita af því að þú ætlir að sprengja tunglið í loft upp.“

Stephen Colbert, stjórnandi The Late Show, hóf þátt gærkvöldsins á því að spyrja hvort hægt væri að taka síma forsetans af honum.

„Vegna þess að allt sem hann gerir með síma sínum er slæmt. Tísta, tala, áreita hann kynferðislega. „Siri, í hverju ertu?“,“ sagði Colbert.

„Þetta eru algjör svik við hermenn Kúrda sem aðstoðuðu Bandaríkin við að sigra ISIS. Það er aðeins ein leið út úr þessu. Kúrdar, þið hafið sólarhring til að koma óorði á Joe Biden.“

Ákvörðun Trumps gerir Tyrkjum kleift að herja á sýrlenska Kúrda. Gagnrýni á ákvörðunina er ekki bundin við frjálslynda spjallþáttastjórnendur en nokkrir af helstu bandamönnum Trumps hafa lýst yfir óánægju með hana, þar á meðal öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham. Hann sagði ákvörðunina „stórslys“.

Trump hefur reynt að lægja öldurnar með því að hóta Tyrkjum efnahagslegri eyðileggingu.


Tengdar fréttir

Íslenskur Kúrdi segir Trump vera svikara

Flutningar bandarískra hermanna frá norðurhluta Sýrlands hófust í dag. Tyrkir áforma nú innrás á svæðið til þess að berjast við hersveitir Kúrda sem þar hafa yfirráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.