Lífið

Skósveinn Svarthöfða eftir heilablæðingu

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Jóhann Waage er nýbúinn að fullkomna búning keisaralegra geimsjóliða. Búningurinn komst á spjöld sögunnar þegar einn slíkur sótraftur sprengdi reikistjörnuna Alderaan, æskuslóðir Lilju prinsessu, í Star Wars 1977.
Jóhann Waage er nýbúinn að fullkomna búning keisaralegra geimsjóliða. Búningurinn komst á spjöld sögunnar þegar einn slíkur sótraftur sprengdi reikistjörnuna Alderaan, æskuslóðir Lilju prinsessu, í Star Wars 1977.
Jóhann Waage var eins árs þegar fyrsta Star Wars-myndin var frumsýnd 1977 en reiknast til að hann hafi verið orðinn sjö ára þegar framhaldsmyndin The Empire Strikes Back rataði loksins í Borgarnesbíó og hann steig sín fyrstu skref inn í stærri heim þar sem hann hefur verið með í það minnsta annan fótinn síðan.

„Empire Strikes Back er fyrsta Star Wars-myndin sem ég sá og ég varð gjörsamlega dolfallinn þarna í litla bíóinu í Borgarnesi. Maður fór síðan í Kaupfélagið og keypti sér Star Wars-kalla,“ segir Jóhann sem meðtók strax það sem hann kallar „ákveðinn kúltúr“.

Jóhann í fullum skrúða.
Síðan leið tíminn og sveitastrákurinn varð stór án þess þó að vaxa upp úr stjörnustríðskúltúrnum og bjó í Bandaríkjunum 1997 þegar George Lucas frumsýndi endurbættar útgáfur Star Wars-þríleiksins í kvikmyndahúsum. „Ég fór í bíó og sá þá einmitt fólk í búningum í fyrsta skipti. Mér fannst þetta ógeðslega flott,“ segir Jóhann sem varð um svipað leyti fyrst var við 501st Legion, hóp Star Wars-nörda sem spóka sig í vönduðum eftirlíkingum búninga illmennanna í myndum.

Ófeigum í Helstirnið komið

Og áfram leið tíminn og það er ekki fyrr en 2015 að íslenskir liðsmenn 501. herdeildarinnar, með stofnandann og foringjann Hilmi Kolbeins í fylkingarbrjósti í forláta Svarthöfða-búningi, verða á vegi Jóhanns.

„Eftir það fylgdist ég alltaf með þeim af hliðarlínunni. Áhuginn var alltaf til staðar og Hilmir skaut því reglulega á mig hvort ég ætlaði ekki að fara að koma mér í búning.

Það er svo í nóvember 2017 sem ég fæ heilablæðingu og var lagður inn á gjörgæslu og síðar heila- og taugadeild. Ég var næstum dáinn og ákvað þarna að láta drauminn rætast.“

Jóhann pantaði sér samfesting, stígvél, hanska, belti og „gunner-hjálm“ og fyrsti búningurinn hans var fullklár í febrúar í fyrra og það sama ár fór hann í sinn fyrsta leiðangur þegar herdeildin marseraði niður Laugaveginn 4. maí, á alþjóðlegum hátíðisdegi Stjörnustríðsnörda.

„Þetta var alveg ofboðslega erfið ganga fyrir mig þar sem ég var í spelkum upp eftir öllu en ég hefði aldrei viljað sleppa þessu þótt það taki á líkamlega að athafna sig í svona herklæðum.“

Star Wars- fjölskyldan

Ástríðufull áhugamál eru oftar en ekki ávísun á sambúðarárekstra en Mátturinn er með Jóhanni í blíðu og stríðu þótt lífsförunauturinn Svandís Sveinsdóttir hafi ekki deilt Stjörnustríðsáhuganum með honum.

„Ég vildi koma mér upp búningi í gínu og hafa sem stofustáss en hún sagði þvert nei. Það kæmi bara alls ekki til greina og hún myndi aldrei láta sjá sig í svona búningi.

Svandís fylgdi honum þó á nördasamkomu í fyrra þar sem sjö þýskir fulltrúar 501. deildarinnar voru mættir í glæsilegum búningum. „Hún hreifst svona rosalega af þessum flottu búningum og hversu mikil og náin vinátta er á milli okkar í hópnum og hún hefur verið á hliðarlínunni eins og ég áður.“

Börnin þeirra tvö hafa eðli málsins samkvæmt verið alin upp sem Stjörnustríðsnördar og vildu að sjálfsögðu fá að vera með. „Þannig að ég keypti Jawa-búninga á þau frá Bretlandi og þau breytast beinlínis í glyrnunga um leið og þau eru komin í þá,“ segir Jóhann um senuþjófana sína tvo sem skyggja alltaf á foreldrana þegar Stjörnustríðsfjölskyldan fer á kreik.

„Þau fengu langmesta athygli á Menningarnótt þar sem bæði útlendingar og Íslendingar voru alltaf að stoppa þau til þess að fá að taka myndir,“ segir Star Wars-pabbinn sem auðvitað er hið mesta ljúfmenni undir brynju útsendara hins illa keisaraveldis. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.