Lífið

Umhverfisvænt heimili Evu: Þrífur dömubindin og heimagerð hreinsiefni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Valdís Eva endurnýtir og flokkar allt sem hún mögulega getur.
Valdís Eva endurnýtir og flokkar allt sem hún mögulega getur.
Jörðin er að drukkna í rusli og við erum misdugleg að gera okkar þegar kemur að því hugsa um umhverfið. Hjúkrunarfræðingurinn Valdís Eva gerir meira en flestir en lætur það líta auðveldlega út. Sindri Sindrason hitti Valdísi í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.

Hún þrífur dömubindin sín, notar tannkremstöflur, býr til sinn eigin uppþvottalög, þrífur jógúrtdollurnar og notar aftur og svona mætti lengi telja.

Eva notast við lítið sem ekkert plast á sínum heimili.

„Það er svo margt sem við getum gert og keypt annað en áhöld úr plasti,“ segir Eva sem notar til að mynda enga plastpoka á sínu heimili. Dóttir Evu fer til að mynda ávallt með nesti í skólann í fjölnota pokum. Eva hefur sjálf útbúið heimagert hreinsiefni og fer vel yfir þá uppskrift í þættinum hér að neðan.

Eva hefur lent í því að taka rusl af heimili fólks þar sem hún var ekki sátt við hvernig það var flokkað.

„Það var þannig að ég tók mitt eigið rusl sem ég var með sjálf og flokkaði það heima hjá mér.“

Á heimilinu er notast við bambustannbursta, bambuseyrnapinna og tannkremstöflur. Aftur á móti er erfitt að vera alveg plastlaus þegar kemur að hlutum eins og hársjampói. Dömubindin á hennar heimili eru fjölnota.

„Síðustu ár hafa verið að koma á markað svört dömubindi sem er kannski ekki eins óþægilegt fyrir marga þar sem blóðið sést minna,“ segir Eva sem setur síðan dömubindin í þvottavél.

Hér að neðan má sjá innslagið frá því í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.