Barkley klúðraði víti í tapi Chelsea Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. september 2019 21:15 Jasper Cillessen þurfti ekki að verja vítið því Barkley hitti ekki á rammann, en það stoppaði hann ekki frá því að fagna vel vísir/getty Frumraun Frank Lampard sem knattspyrnustjóra í Meistaradeild Evrópu endaði með tapi þegar Valencia hafði betur gegn Chelsea í kvöld. Ross Barkley hefði getað tryggt Chelsea stig á heimavelli í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar þegar hann tók vítaspyrnu undir lok leiks Chelsea og Valencia, en Barkley setti spyrnuna yfir markið. Willian átti gott skot að marki snemma leiks en Jasper Cillessen varði frá Brasilíumannium. Spænsku gestirnir komust yfir á 74. mínútu þegar Rodrigo skilaði aukaspyrnu Daniel Parajeo í marknetið. Chelsea var gefin líflína undir lokin þegar þeim var dæmd vítaspyrna eftir myndbandsdómgæslu, en Barkley setti spyrnuna yfir eins og áður segir. Því þurfti Lampard að sætta sig við 1-0 tap í fyrsta leik sem stjóri Chelsea í Meistaradeildinni. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti