Lífið

„Skil vel að ég sé gagnrýndur“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björn Bragi opnar sig í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.
Björn Bragi opnar sig í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.
„Ég fékk yfir mig skít og átti það fyllilega skilið,“ segir uppistandarinn Björn Bragi Arnarsson sem eins og margir muna káfaði á ungri konu á djamminu í fyrra en atvikið náðist á myndaband. Björn verður í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.

Í þætti kvöldsins talar hann um málið, hvernig lífið varð í kjölfarið, sjálfsskoðunina, samband sitt við fjölskyldu stelpunnar, hana sjálfa og hvernig það var að stíga á svið á ný en hann og leikkonan Anna Svava Knútsdóttir hafa sett upp sýninguna Björn Bragi Djöfulsson í Gamla bíói.

Þátturinn hefst klukkan 18:55, strax að loknum fréttum. Hér að neðan má sjá brot úr innslagi kvöldsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.