Gareth Bale allt í öllu í jafntefli Real gegn „Gula kafbátnum“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bale fagnar marki í kvöld.
Bale fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Villareal og Real Madrid gerðu 2-2 jafntefli í spænska boltanum í kvöld en Gareth Bale var allt í öllu í Madrídarliðinu í leiknum.

Gerard Moreno skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Villareal á 12. mínútu en Gareth Bale jafnaði metin skömmu fyrir hlé.





Aftur komust heimamenn í Gula kafbátnum yfir er Moi Gomez skroaði á 74. mínútu en aftur var það Gareth Bale sem jafnaði. Nú fjórum mínútum fyrir leikslok.

Fjörinu var ekki lokið því í uppbótartíma fékk Wales-verjinn Bale sitt annað gula spjald og þar með rautt spjald. Því var hann sendur í bað.





Lokatölurnar urðu þó 2-2 og Real er með fimm stig eftir fyrstu þrjá leikina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira