Lífið

Bella Thorne er pankynhneigð

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Bella Thorne.
Bella Thorne. Vísir/Getty
Bandaríska leikkonan Bella Thorne er pankynhneigð. Þetta opinberaði hún í sjónvarpsþættinum Good Morning America.

Árið 2016 upplýsti Thorne um að hún væri tvíkynhneigð, en segist nú hafa áttað sig á því að sú skilgreining næði ekki utan um kynhneigð sína.

„Ég er reyndar pankynheigð, og ég vissi það ekki. Nú er búið að útskýra fyrir mér hvað það er.“

Í stuttu máli lýsir pankynhneigð sér þannig að einstaklingur laðast að persónuleika fólks frekar heldur en útliti þeirra eða kyneinkennum.

„Þú ert hrifin af fólki. Þú fílar það sem þú fílar. Það þarf ekki að vera stelpa eða strákur eða hann eða hún eða hán eða hitt eða þetta. Þú ert bara hrifin af persónuleika, hrifin af fólki,“ sagði Thorne meðal annars í viðtalinu.

Viðtalið við leikkonuna má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.