Fasteignagjöld víða hækkað ríflega frá 2013 Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. júlí 2019 10:43 Hækkun á fráveitugjöldum í fjölbýli var mest á Seltjarnarnesi. Vísir/vilhelm
Fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði í 15 stærstu sveitarfélögum landsins hafa í mörgum tilfellum hækkað mikið á síðustu sex árum og í sumum tilfellum hafa þau meira en tvöfaldast. Ef marka má úttekt verðlagseftirlits ASÍ hafa mestar hækkanir orðið á fasteignasköttum, lóðaleigu og sorphirðugjöldum en jafnframt má finna miklar hækkanir í öllum gjaldaflokkum. Í úttekt sinni, sem nálgast má í heild sinni á vef ASÍ, nefnir eftirlitið að í mörgum tilfellum hafi fasteignagjöld hækkað um eða yfir 50% og í þó nokkrum tilfellum um 70-100%. „Sem dæmi um hækkanir á fasteignagjöldum á síðustu sex árum má nefna að fasteignaskattur í fjölbýli hækkar mest í Keflavík, Reykjanesbæ um 136%, hækkun á fráveitugjöldum í fjölbýli er mest 128,4% hjá Seltjarnarneskaupstað og hækkun á lóðaleigu í fjölbýli 122,4% í Keflavík, Reykjanesbæ. Vatnsgjald hefur á tímabilinu hækkað mest í fjölbýli á Selfossi, Sveitarfélaginu Árborg um 69,5% og sorphirðugjald um 114,2% hjá Seltjarnarnesbæ,“ segir í úttektinni.Nánar má fræðast um málið á vef ASÍ, þar sem m.a. má finna töflur með samanburði á hækkununum eftir sveitarfélögum, breytingar á álaningu þeirra og samtals breytingu á innheimtum fasteignagjöldum þar sem tillit er tekið til breytinga á fasteigna- og lóðamati frá árinu 2013.
Neytendur Skattar og tollar Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Fasteignagjöld fylgi ekki markaðshækkun fasteigna Fasteignamat í Árborg hækkaði að meðaltali um 22 prósent milli ára. 15. nóvember 2018 08:00 Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Sjá meira
Fasteignagjöld fylgi ekki markaðshækkun fasteigna Fasteignamat í Árborg hækkaði að meðaltali um 22 prósent milli ára. 15. nóvember 2018 08:00