Lífið

Mynd­band frá verk­efni Cole Sprou­se á Ís­landi

Sylvía Hall skrifar
Cole Sprouse.
Cole Sprouse. Vísir/Getty
Bandaríski leikarinn Cole Sprouse heimsótti Ísland í apríl á þessu ári með ítalska útivistar- og lífstílsfyrirtæknu Moncler. Var tilefni ferðarinnar myndataka fyrir fyrirtækið.

Sjá einnig: Cole Sprouse staddur á Íslandi

Heimsókn leikarans vakti athygli á sínum tíma en leikarinn deildi myndum og myndböndum af íslensku landslagi á meðan ferðinni stóð. Leikarinn er einnig lunkinn ljósmyndari og tók hann myndir í þessu verkefni Moncler.





Leikarinn er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cody Martin í þáttaröðinni The Suite Life of Zack and Cody, sem sýnd var á Disney Channel árin 2005 til 2008. Tvíburabróðir hans, Dylan Sprouse, fór með hlutverk Zack í þáttunum. Þá fóru þeir í sameiningu með hlutverk Ben Geller í Friends.

Hópurinn virðist hafa fengið að upplifa ekta íslenskt veður á meðan þau dvöldu hér, rigning og ský eru allsráðandi á meðan þau virða fyrir sér magnað landslag Íslands.

Hér að neðan má sjá myndbandið.


Tengdar fréttir

Cole Sprouse staddur á Íslandi

Bandaríski leikarinn Cole Sprouse er staddur á Íslandi, ef marka má færslur hans á Instagram frá því í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.