Tónlist

Sturla Atlas og Auður sam­eina krafta sína í nýjum popp­smelli

Sylvía Hall skrifar
Þessir piltar gleðja landann með nýrri tónlist í dag.
Þessir piltar gleðja landann með nýrri tónlist í dag. Vignir Daði Valtýsson
Lagið Just A While kom út á miðnætti og eru það tveir landsþekktir tónlistarmenn sem standa að baki laginu. Um er að ræða Auður og Sturla Atlas, en lagið varð upphaflega til fyrir tveimur árum og hafa margir listamenn sett mark sitt á lagið frá þeim tíma.

„Lagið varð til fyrir meira en tveimur árum, ég og Auddi [Auður] og Arnar Ingi [Young Nazareth] tókum sessionið og gerðum grunninn. Lagið var eiginlega alveg tilbúið, það var alveg samið og sat bara ótrúlega lengi,“ segir Sturla Atlas í samtali við Vísi. Hann segir þá kollega ekki alveg hafa vitað hvað þeir ættu að gera við lagið og því hafi það legið í dvala í dágóðan tíma. 

 

 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by Sturla Atlas (@sturlaatlas) on Jun 20, 2019 at 9:22am PDT



„Það var ekki fyrr en síðasta desember sem ég og Logi [Pedro] förum eitthvað að skoða þetta lag. Logi endurpródúseraði það smá og við bættum við einum kafla.“

Eftir að lagið öðlaðist nýtt líf var það svo aftur sent til Arnars Inga sem fékk tónlistarmennina Magnús Jóhann Ragnarsson og Guðrúnu Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, til liðs við sig. Magnús Jóhann spilaði hljóma inn á lagið og GDRN sá um bakraddir. Að lokum spilaði Logi Pedro á gítar og bætti upp á „groove-ið“ í laginu.

„Þetta er allan tímann búið að vera svona straight forward lag, þetta er bara poppsmellur og er ekkert að reyna að vera neitt annað en það,“ segir Sturla Atlas að lokum.  








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.