Lífið

Mayweather birtir myndband frá Bláa Lóninu

Andri Eysteinsson skrifar
Hinn efnaði Mayweather hér á körfuboltaleik vestanhafs.
Hinn efnaði Mayweather hér á körfuboltaleik vestanhafs. Getty/Allen Berzovsky
Boxarinn ósigrandi Floyd Mayweather yngri var staddur hér á landi á dögunum og eins og margir aðrir lét vaða og skellti sér í Bláa Lónið.

Mayweather hefur nú birt örstutt myndskeið frá heimsókn sinni í Lónið þar sem hann horfir, hettupeysuklæddur, yfir baðgesti.

Mayweather er einn af þeim íþróttamönnum sem mest hafa þénað á ferlinum en Mayweather barðist 50 sinnum og bar sigur úr býtum undantekningarlaust. Mayweather hefur þó tapað á einum stað en það er í réttarsalnum.

Mayweather hefur verið dæmdur í fjórgang fyrir ofbeldi gegn konum. Árið 2011 var Mayweather dæmdur í 90 daga fangelsi auk fjársekta og samfélagsþjónustu fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi, þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa hótað eigin börnum.


Tengdar fréttir

Pacquiao vill berjast aftur við Mayweather

Hinn fertugi Manny Pacquiao er enn að í hnefaleikunum og varð meistari hjá WBA-hnefaleikasambandinu um helgina er hann hafði betur gegn Adrian Broner. Pacquiao er hvergi nærri hættur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.