Lífið

Annar aðalhöfunda Friends segir endurkomu ekki í sjónmáli

Sylvía Hall skrifar
Kauffman sést hér til hægri ásamt einum aðalleikaranna, David Schwimmer og samhöfundi sínum David Crane.
Kauffman sést hér til hægri ásamt einum aðalleikaranna, David Schwimmer og samhöfundi sínum David Crane. Getty/NBC
Marta Kauffman, ein þeirra sem færði okkur hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Friends, segir það ekki koma til greina að hópurinn komi saman til þess að gera fleiri þætti eða bíómynd líkt og margir aðdáendur hafa vonað. Þetta kemur fram í viðtali við Kauffman við AP.

Kauffman og David Crane eru höfundar þáttanna sem slógu rækilega í gegn og njóta enn mikilla vinsælda um allan heim. Þættirnir voru sýndir í áratug, frá árinu 1994 til 2004, og lifa góðu lífi á streymisveitunni Netflix.

Umræðan um endurkomu þáttanna hefur náð nýjum hæðum enn á ný eftir að ein aðalleikkona þáttanna, Jennifer Aniston, hafnaði ekki möguleikanum á því í viðtali við Ellen nýlega. Spjallþáttadrottningin bað hana einfaldlega um að taka þátt í endurkomu þáttanna sem leikkonan svaraði: „Allt í lagi“. Hún sagði bæði sjálfa sig og aðra í leikhópnum vera til í að taka þátt í slíkri endurkomu.

„Allt getur gerst,“ sagði Aniston í viðtalinu.

Aniston lýsti því yfir eftir viðtalið að það væri ekkert sem benti til þess að leikhópurinn kæmi aftur saman, mörgum aðdáendum til mikils ama. Kauffman tók undir það og nánast afskrifaði möguleikann á endurkomu.

„Af hverju að eyðileggja góðan hlut? Við myndum ekki vilja endurkomu og valda aðdáendum vonbrigðum.“

Umrætt viðtal við Aniston má sjá hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Bestu mistökin úr Friends

Gamanþættirnir Friends njóta enn gríðarlegra vinsælda og horfa milljónir manna á þættina daglega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.