Lífið

Búast við um 12 þúsund manns á Secret Solstice

Jakob Bjarnar skrifar
Undirbúningur fyrir tónlistarhátíðina stendur nú yfir og verið er að gera svæðið klárt. Að sögn Jóns Bjarna upplýsingafulltrúa búast tónleikahaldarar við 10 til 12 þúsund manns.
Undirbúningur fyrir tónlistarhátíðina stendur nú yfir og verið er að gera svæðið klárt. Að sögn Jóns Bjarna upplýsingafulltrúa búast tónleikahaldarar við 10 til 12 þúsund manns.
Undirbúningur fyrir tónlistarhátíðina Secret Solstice, sem fram fer um helgina í Laugardalnum, er í fullum gangi. Aðalsviðið komið upp, hátalarar komnir upp, hliðið komið upp … „Listamenn á leiðinni. Það er allt í gangi,“ segir Jón Bjarni Steinsson upplýsingafulltrúi hátíðarinnar. Hann er fjallbrattur og segir allan undirbúning vera samkvæmt áætlun.

Hann segir aðstandendur búast við um 10 til 12 þúsund gestum.

Jón Bjarni svarar af bragði, spurður hvort það hafi ekki reynst talsvert áfall þegar tvær af skærustu stjörnum sem á dagskrá voru forfölluðust, þau Rita Ora og Martin Garrix: „Við viljum nú meina, með fullri virðingu, að þau séu nú ekki stærri en Robert Plant og Black Eyed Peas.“

Listamennirnir ætla að skoða sig um

Robert Plant er væntanlegur til landsins á laugardaginn en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann kemur til Íslands. Enn fer gæsahúð um gamla hippa þegar þeir minnast Led Zeppelin í Höllinni 1970.

„Hann kemur með rosalega gott band með sér og þeir eru spenntir að koma. Plant er á tónleikaferð nú um stundir um Norðurlöndin. Hann tekur Zeppelinlög á tónleikunum.“

Að sögn aðstandenda stendur til að höfða til breiðari aldurshóps en áður hefur verið á hátíðinni, dagskráðin endurspeglar það sem og skemmtitæki og mun tónleikahald ekki standa von úr viti inní nóttina.
Plant og félagar munu væntanlega dvelja á Íslandi í einhverja daga og sama er að segja um meðlimi hljómsveitarinnar Black Eyed Peas. Aðspurður hvort búið sé að teikna eitthvað upp fyrir listamennina, einhverjar ferðir, segir Jón Bjarni að það verði ekki gefið upp.

Maður kemur í manns stað

Jón Bjarni segir að fyrir liggi að í stað Garrix komi Jónas Blue, sem er einn af hundrað vinsælustu tónlistarmönnum dagsins í dag á Spotify.

„Og þegar við heyrðum á mánudag að Rita Ora væri veik var varaáætlun sett af stað. Við vonumst til að geta tilkynnt það fyrir dagslok hver það verður sem kemur í staðinn fyrir hana.“

Fyrir liggur að erfitt er að fá listamenn með svo skömmum fyrirvara en Ora hefur hins vegar gefið út yfirlýsingu um að hún muni koma til Íslands að ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.