Ajax eyðilagði frumraun Tottenham í undanúrslitum

Donny van de Beek fagnar marki sínu
Donny van de Beek fagnar marki sínu vísir/getty
Ajax komst í vænlega stöðu gegn Tottenham með eins marks sigri í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Tottenham er í fyrsta skipti í sögu félagsins í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en það byrjaði ekki vel fyrir þá hvítu.

Donny van de Beek skoraði með laglegu skoti eftir að hollensku gestirnir spiluðu sig í gegnum vörn Tottenham. Myndbandsdómgæslan fór yfir markið til að tryggja að engin rangstæða væri á ferðinni, Kieran Trippier spilar van de Beek réttstæðan.

Jan Vertonghen fékk högg á andlitið eftir um hálftíma leik og blæddi mikið úr sárinu. Leikurinn stöðvaðist í nokkurn tíma á meðan Vertonghen fékk aðhlynningu, hann kom inn á aftur en þurfti svo að fá skiptingu örfáum mínútum síðar og kastaði upp.

Vertonghen fékk slæmt höfuðhögg eftir um hálftíma leikvísir/getty
Tottenham endaði hálfleikinn vel en náði ekki að koma marki í leikinn og var Ajax nokkuð sanngjarnt 1-0 yfir í hálfleik.

Tottenham hefur hins vegar ekki verið yfir í hálfleik í einum einasta leik í Meistaradeildinni í vetur svo ekki var öll von úti.

Bæði lið byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti en Tottenham tók yfirhöndina í leiknum. Þrátt fyrir fjöldan allan af færum náðu þeir hvítu ekki að skora og leiknum lauk með 1-0 sigri Ajax.

Ajax fer því með sigur og útivallarmark á bakinu inn í seinni leikinn í Hollandi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira