Magnaður Messi tryggði Barcelona enn einn titilinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi fagnar titlinum í kvöld.
Messi fagnar titlinum í kvöld. vísir/getty
Barcelona er spænskur meistari eftir að hafa unnið 1-0 sigur á Levante í 35. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Lionel Messi var geymdur á bekknum í fyrri hálfleik en Barcelona spilar við Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöldið.







Messi var sendur á vettvang í hálfleik og hann skoraði fyrsta og eina mark leiksins á 62. mínútu. Hann fékk boltann í teignum, lék á tvo varnarmenn og lagði boltann í hornið.

Þetta er annað árið í röð sem Barcelona vinnur titilinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira