Lífið

Friðrik bað Þuríði að giftast sér aftur á Grænhöfðaeyjum eftir fjörutíu ára hjónaband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg hjón sem hafa gengið í gegnum margt saman.
Falleg hjón sem hafa gengið í gegnum margt saman.
Hvernig er hægt að vera giftur í 40 ár og eftir súrt og sætt, vera enn ástfanginn að maður giftist aftur sömu manneskjunni?

Ein ástsælasta söngkona landsins, hin fallega og hláturmilda Þuríður Sigurðardóttir og sjarmörinn Friðrik Friðriksson giftu sig aftur eftir 40 ára hjónaband en Friðrik kom Þuríði á óvart þegar þau voru á ferðalagi á Grænhöfðaeyjum.

Vala Matt heimsótti hjónin í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær  og hitti þessi fallegu hjón.

Vala Matt ræddi við hjónin.
En hver er galdurinn við að halda ástar neistanum svona sterkum og í svona langan tíma í lífsins ólgusjó?

„Það sem heldur sambandi okkar gangandi eru sameiginleg áhugamál og ákveðin virðing. Við pössum okkur að vera ekki að þrasa út af einhverjum smámunum og höfum við aldrei gert það,“ segir Þuríður.

„Við höfum bæði tekist á við alvarlega sjúkdóma, komist yfir það og þegar það gerist í lífi manns þá áttar maður sig á því hvað er mikilvægast í lífinu og ég held að það sé allur galdurinn.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.