Lífið

Guðmundur og Jóhanna yfir sig ástfangin eftir kynni á Makaleit

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðmundur og Jóhanna alsæl með lífið.
Guðmundur og Jóhanna alsæl með lífið.
Vala Matt hitti hamingjusamt par, þau Guðmund Helga Hjaltalín, kerfisfræðing, og Jóhönnu Maríu Ríkharðsdóttur, kennara, í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í gær en þau kynntust í gegnum stefnumótavefinn makaleit.is.

Í dag eiga þau tvö börn saman og eru nýflutt í flott raðhús í Mosfellsbænum.

Þau stefna á að gifta sig fljótlega á næsta ári og eru ekkert feimin við að segja frá því að þau hafi kynnst og orðið ástfangin á stefnumótavef.

Guðmundur og Jóhanna mæla heilshugar með þeirri leið og segja þetta fína leið til að kynnast skemmtilegum lífsförunaut eða félaga eða jafnvel finna ástina. Í dag eru þau yfir sig ástfanginn og alsæl í Mosfellssveitinni.

Hér að neðan má sjá innslagið þar sem rætt er við parið og einnig stofnanda vefsíðunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.