Lífið

Neil Patrick Harris fékk sér að borða á Hlemmi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Neil Patrick Harris og David Burtka.
Neil Patrick Harris og David Burtka. Getty/Theo Wargo
Bandaríski leikarinn Neil Patrick Harris er staddur hér á landi ásamt eiginmanni sínum David Burtka. Hjónin komu við á veitingastaðnum Skál á Hlemmi í gær, fimmtudag. Greint er frá á vef Veitingageirans.

Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumeistari og eigandi Skálar segir í samtali við Veitingageirann að Harris og Burtka hafi fengið sér nánast allt á matseðlinum.

„Voru mjög sáttir, elskuðu matinn og vibe-ið í mathöllinni,“ bætir Gísli við. Hann fékk jafnframt mynd af sér með köppunum á Hlemmi og ekki er annað að sjá en að þeir njóti sín vel í mathöllinni.

Harris er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Barney Stinson í sjónvarpsþáttunum How I Met Your Mother. Burtka hefur einnig getið sér gott orð sem leikari vestanhafs en hann er einnig menntaður kokkur.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.