Lífið

Þorsteinn var tölvufíkill starfandi í BT: „Jafn slæmt og alki sem fær vinnu í ÁTVR“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorsteinn á fjögur börn í dag og starfar sem menntaskólakennari.
Þorsteinn á fjögur börn í dag og starfar sem menntaskólakennari.
„Þrjátíu og þriggja ára bjó ég hjá mömmu minni, var í mikilli yfirvigt, átti ekkert nema skuldir og hékk í tölvunni öllum stundum enda var ég tölvufíkill,“ segir Þorsteinn Kristjáns Jóhannsson sem ákvað á þessum punkti að taka sig á.  Hann var gestur í þættinum Ísland í dag á þriðjudagskvöldið.

Það gekk vel en nokkrum árum seinna var hann kominn með háskólagráðu, orðinn stærðfræðikennari í menntaskóla, giftur tveggja barna faðir. Þorsteinn sagði sögu sína í þættinum Íslandi í dag í gærkvöldi.

„Ég hélt alltaf að ég væri bara áhugamaður þegar kom að tölvuleikjum og var hæstánægður þegar ég fékk vinnu í BT. Ég fékk að prófa alla tölvuleikina og segja álit mitt á þeim. En það var auðvitað jafn slæmt og alki sem fær vinnu í ÁTVR við að prófa allar tegundirnar. Ég var auðvitað bara fíkill,“ segir Þorsteinn.

Hann segir tölvufíkn vera alvarlegan sjúkdóm en segir aldrei of seint að snúa blaðinu við, sama hversu gamall maður er.

„Ég fór að hugsa hvort ég væri nokkuð fíkill og prófaði að slökkva á tölvunni. Þá fékk ég bara fráhvarfseinkenni. Varð bara þvalur, átti erfitt með svefn og fékk kvíðakast og þunglyndi yfir því hvað ég var búinn að eyða miklum tíma í tölvunni. Síðar meir fór ég að reyna ná fókus og hugsa hvað ég vildi gera með líf mitt. Tölvan hafði verið veruleikaflótti og ég fór að setja mér markmið. Það sem ég gerði var að ég kláraði alltaf fyrst það sem ég vildi gera, svo kom tölvan,“ segir Þorsteinn sem rauk í gegnum nokkrar háskólagráður og gerði það eins og drekka vatn, bara þegar tölvan var komin í annað sætið.

Hér að neðan má sjá innslagið um Þorstein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.