Tónlist

Föstudagsplaylisti Kaktusar Einarssonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Kaktus í krapinu.
Kaktus í krapinu. aðsend
Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson, tónsmiður og stofnmeðlimur teknósveitarinnar Captain Fufanu, sem síðar varð að töffararokksveitinni Fufanu, setti saman bassaþrunginn febrúargrúvlagalista.

Fyrir um mánuði síðan kom út lag með þekkta þýska house-tónlistar dúóinu Booka Shade, sem unnið var í samstarfi við Kaktus, en hann var á unglingsárum mikill Booka Shade aðdáandi.

Hann lýsti tilurð samstarfsins í samtali við Vísi. „Ég hitti á þá á írsku festivali í sumar þar sem þeir voru að spila og ég var að spila með Fufanu. Við spjölluðum og ræddum meðal annars að við hefðum hist áður þegar þeir hefðu spilað á Íslandi. Mánuði seinna heyrðu þeir aftur í mér og vildu fá mig í samstarf - úr varð lagið I go, I go.“

Um lagavalið sagði Kaktus að „til að komast inn á þennan spilalista þurftu lögin að innihalda geggjað bassasánd og bassagrúv, en það er þemað.“

Listinn er samkvæmt honum settur saman úr tónlist víðs vegar úr heiminum. „Lögin flakka heimshornanna á milli og eru ólík en á sama tíma líma þessi bassasánd og grúv þau saman.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.