Lífið

Páll losaði sig við yfir þrjátíu kíló og geðlyfin með dáleiðslu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Páll er í skýjunum með árangurinn.
Páll er í skýjunum með árangurinn.
Sjónvarpskonan Vala Matt fór í gærkvöld í þættinum Íslandi í dag og heimsótti dáleiðarann Jón Víðis Jakobsson sem hefur verið að hjálpa fólki að sigrast á ýmsum vandamálum og meðal annars hjálpa fólki við að grennast.

Það kom í ljós að margir af hans kúnnum hafa losnað við ótrúlegan fjölda kílóa. Hann grenntist sjálfur um 30 kíló með dáleiðslu og hefur haldið sér á réttu róli eftir það.

Einnig hefur hann hjálpað Páli Árnasyni að grennast um 32 kíló og hans magnaða reynslusaga er alveg ótrúleg en Páll var með sykursýki 2 og hefur nú getað minnkað sykursýkislyfin um helming í samráði við lækni.

En mesta gleði Páls er að nú þarf hann ekki lengur að taka þunglyndislyfin sem hann hefur verið á undanfarin 13 ár og allt í samráði við lækna og það finnst honum mesti sigurinn. Og hann er himinlifandi yfir árangrinum í dag.

„Ég hef létt mig um 32 kíló á tíu mánuðum,“ segir Páll Árnason.

„Ég ákvað að fara læra dáleiðslu í Dáleiðsluskóla Íslands og þar kynntist ég Jóni. Hann ákvað að leyfa mér að prófa þessa sýndarmagabands aðgerð hjá sér. Ég ákvað að þiggja það og hitti hann í tvö skipti ef þeim þremur sem hann býður upp á, en þetta virkaði svo vel fyrir mig.“

Páll segir að í kjölfarið hafi hann byrjað að borða miklu minna.

„Ég borðaði bara þrjár máltíðir á dag og bara einu sinni á diskinn. Ég breytti engu öðru og ef mér langar í sælgæti, þá fæ ég mér bara sælgæti. Ég breytti engu í mataræðinu nema bara ég borða minna af öllu.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.