Lífið

Ariana Grande fékk sér húðflúr með hræðilegri stafsetningarvillu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Grande er einn vinsælasti tónlistarmaður heims í dag.
Grande er einn vinsælasti tónlistarmaður heims í dag.
Tónlistarkonan Ariana Grande sýndi glænýtt húðflúr á Instagram í vikunni og er það staðsett í lófanum.

Um er að ræða húðflúr á japönsku  og sagði Ariana Grande að það þýddi „7 Rings“ eða Sjö hringir.

Aðdáendur Grande í Japan voru ekki lengi að taka við sér á Twitter og benda á stafsetningarvillu en þarna stendur í raun Shichirin eða BBQ Grill.

Myndin er farin af Instagram. Mikil umræða hefur skapast um málið á Twitter eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.