Tónlist

Nýr fréttamiðill virðist vera á vegum Hatara

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Söngvarar Hatara í viðtali við Iceland Music News.
Söngvarar Hatara í viðtali við Iceland Music News. Skjáskot
Nú fyrir helgi dreifði hljómsveitin Hatari, sem á nýlega að hafa lagt upp laupana, einkaviðtali nýs, óþekkts fréttamiðils við sveitina. 

Vefsíðan sem um ræðir heitir Iceland Music News. Við nánari athugun kemur í ljós að einungis er að finna fréttir um Hatara á vefnum, auk þess að á honum kemur fram að hann er í eigu Svikamyllu ehf., en Svikamylla ehf. var rekstraraðili Hatara þar til stjórn hennar „ályktaði um starfslok sveitarinnar á aðalfundi félagsins“ í desember.

Það liggur þó fyrir að sveitin kemur fram á hátíðinni Eurosonic í Hollandi í vikunni, svo sveitin virðist ekki dauð úr öllum æðum.

Í „einkaviðtalinu“ eru Matthías Tryggvi Haraldsson og Klemens Hannigan, söngvarar sveitarinnar, spurðir út í ástæður þess að sveitin hafi lagt upp laupana. Þar hafi vegið þyngst að höfuðmarkmið þeirra, „að knésetja kapítalismann,“ hafi ekki tekist á tilsettum tíma.

Þeir segjast í viðtalinu vilja sýna aðdáendum Hatara virðingu með því að stíga einlægir fram í opinberu viðtali. Fataval söngvaranna virðist þó úthugsað og sviðsett, og klappa þeir hvolpi á meðan þeir sitja uppstrílaðir fyrir svörum.

Þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu þeirra við neysluhyggju telja þeir upp ýmis vörumerki sem þeim hugnast í viðtalinu en enda svo á að segjast stefna á að „knésetja kapítalismann innan veggja heimilisins“ héðan í frá.


Tengdar fréttir

Auglýsa Svikamyllu ehf. út um alla borg

Hljómsveitin Hatari gefur út sína fyrstu EP-plötu á laugardaginn næstkomandi. Sveitin mun koma fram á Neysluvöku sama dag með Cyber, Kuldabola og russian.girls. Bak við viðburðinn er hið dularfulla félag Svikamylla ehf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.