Rannsakar eigin rödd betur Starri Freyr Jónsson skrifar 20. október 2018 14:00 „Það sem ég lærði kannski líka er að maður verður að vera trúr sinni sannfæringu og gera það sem er satt fyrir mann sjálfan. Á tímabili var það FM Belfast en það tók endi eins og gengur og gerist,“ segir Árni Vilhjálmsson sem undirbýr sína fyrstu sólóplötu um þessar mundir. fbl/anton
Eftir níu eftirminnileg ár með gleðisveitinni FM Belfast hefur Árni Vilhjálmsson, einn söngvara sveitarinnar, sagt skilið við félaga sína og hafið sólóferil. Hann kemur fram á Airwaves-tónlistarhátíðinni í næsta mánuði en fyrr í vikunni gaf Árni út fjórða lag sitt á árinu, Sides. Óhætt er að segja að tónlist Árna sé talsvert ólík þeirri sem hann var að fást við í FM Belfast þar sem lífleg elektróníkin víkur fyrir rólegri tónlist með hjálp fjölbreyttari hljóðfæra. „Tónlistin sem ég gef út undir nafninu Árni Vil er á frekar persónulegum nótum. Ég hef mest unnið hana með Þóri Bogasyni (Thoracius Appotite) en hann er mjög hæfileikaríkur, bæði tónlistarlega og svo gerir hann frábær myndbönd.“ Innblásturinn segist hann sækja í ýmis stef úr lífi sínu. „Stefin eru samt örugglega á einhvern hátt almenn líka og eitthvað sem margir hafa staðið frammi fyrir. Eins og t.d. óttann við að verða ekki það sem þú vilt vera, þráhyggju og vera með drauma en liggja svo bara í kvíða og aðgerðarleysi uppi í rúmi á Facebook og fylgjast með lífinu fjara út.“Hálfgerðar geimverur Lögin fjalla líka á einhvern hátt um eitthvað sammannlegt, að sögn Árna. Um það hvað við erum lík og dílum við sömu hlutina en getum um leið birst hvert öðru eins og geimverur. „Þetta eru kannski að einhverju leyti barnalegar og persónulegur pælingar en lögin og textarnir eru unnir með lítilli ritskoðun. Textarnir eru á ensku af því hugðarefnin eru frekar almenn og þá er fínt að fleiri skilji orðin. Ég er samt orðinn frekar spenntur fyrir því að prófa líka að gefa út lög á íslensku.“ Um þessar mundir er verið að klára að mixa önnur lög plötunnar en hann reiknar með því að hún komi út fyrir jól. „Ég hef líka verið að vinna lög með Thomasi Stankiewicz sem er mjög klár pródúsent og ætlum við að gefa út nokkur lög á komandi mánuðum. Einnig kemur bráðlega út lag sem við Teitur Magnússon sömdum saman.“fbl/antonGóður tími Árin níu með FM Belfast voru eftirminnileg að sögn Árna sem segir allar tónleikaferðirnar standa upp úr í minningunni. „Það er í rauninni frekar merkilegt að svona lítil indí elektrósveit hafi náð að túra sumar eftir sumar á hverju festivalinu á fætur öðru víða um heim. Einnig var mjög lærdómsríkt að vinna með Árna Rúnari og Lóu en þau eru einstaklega skapandi. Það sem ég lærði kannski líka er að maður verður að vera trúr sinni sannfæringu og gera það sem er satt fyrir mann sjálfan. Á tímabili var það FM Belfast en það tók endi eins og gengur og gerist. Eftir níu ár og þrjár plötur var ég orðinn þreyttur á að túra og fannst það ekki lengur jafn gefandi. Það var kominn tími á að ég gerði eitthvað nýtt og rannsakaði mína eigin rödd betur.“Útvarpið skemmtilegt Þótt flestir þekki tónlistarmanninn Árna á hann sér ýmsar fleiri listrænar hliðar. Hann er m.a. einn meðlima í leikhópnum Kriðpleir og listahópnum Art – Studio Art Collective sem var stofnaður nýlega. „Útvarpsleikritið Bónusferðin eftir okkur félaga í Kriðpleir var flutt á Rás 1 fyrir stuttu og er hægt að hlýða á það á vef RÚV. Það var mjög skemmtilegt að vinna leikrit fyrir þennan miðil en við höfðum ekki gert það áður. Við vorum ekki alveg vissir um hvernig dínamíkin á milli karakteranna myndi skila sér í útvarpi en við teljum að vel hafi tekist til. Leikhópurinn var að skila inn umsókn í sviðslistasjóð og reikna ég með því að við vinnum nýtt verk á næsta ári.“Ólíkar afurðir Listahópurinn Art-Studio Art Collective var stofnaður nýlega af Árna og vini hans Ými Grönvold myndlistarmanni og Þórði Hans Baldurssyni, forritara og digital listamanni. „Við vinnum alltaf eftir ákveðnu ferli og höfum verið að búa til hitt og þetta, þar á meðal alls kyns varning eins og trefla, handklæði, boli og peysur. Einnig gerðum við orkudrykkinn Zenergy – Positive Energy Drink sem er skúlptúr og concept-verk um jákvæða orku.“ Hann segir ferlið sem þeir vinni eftir kalla eiginlega á að það verði alltaf eitthvað búið til. „Þess vegna hafa mjög ólíkir hlutir orðið til eins og t.d. költið okkar, The World Cult, sem er komið með um 50 meðlimi, orkustöðvasamfestingur, Thai nudd vagn, nýtt skjaldarmerki sem við unnum með Óla Stef og svo nýi pappinn sem er unninn með rapparanum og fjöllistamanninum Joey Christ. Ég legg til að fólk fylgist með þessu á instagraminu okkar, @artstudioartcollective.“Sjálfbær þróun til umræðu Þegar Árni sinnir ekki listinni og daglegu starfi sínu hjá Íslensku auglýsingastofunni, segist hann verja mestum tíma sínum með dóttur sinni og kærustu. „Dóttir mín er mikill snillingur og er sem betur fer með svipuð áhugamál og ég. Þannig erum við oft að búa til lög, föndrum mikið saman og svo búum við líka til alls kyns dansa.“ Kærastan hans, Snjólaug Árnadóttir, pælir mikið í loftslagsmálum og segir Árni þau verja mestum tíma sínum í að spjalla um sjálfbæra þróun. „Þar má nefna umræðuefni á borð við hækkun sjávar, plastmengun, offjölgun mannkyns og fleira. Henni finnst líka gaman að flytja fyrir mig alls kyns fyrirlestra, þá helst eitthvað tengt almennri lögfræði. Utan þess hef ég helst áhuga á tónlist, öllu tengdu sjálfshjálp, myndlist, sviðslistum og kannski gríni líka. Mér finnst líka gaman að gera grín. Ég hugsa að það sem mér þyki skemmtilegast sé að gera eitthvað skapandi í hópi.“
Menning Mest lesið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Króli trúlofaður Lífið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Menning „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Fleiri fréttir Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Live in a fishbowl: Alvöru harðkjarnapönk í boði I adapt Hélt tryllt tónlistarteiti og eignaðist svo tvíbura Breyta japönskum dúett í íslenskt jólalag Landslið tónlistarmanna mætti þegar Maggi Eiríks var hylltur Fjölbreyttur hópur tónlistarfólks tilnefndur til Kraumsverðlauna Live in a fishbowl: Spacestation spilaði tónlist fyrir „fallegt fólk“ Uppáhalds jólalögin: Munkadjamm og jólaleg sambandsslit Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi Sjá meira