Viðskipti innlent

Saksóknari telur að Júlíus Vífill hafi gerst sekur um skipulagt peningaþvætti

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Júlíus Vífill í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Júlíus Vífill í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vísir/Vilhelm

Saksóknari fer fram á að Júlíus Vífill Ingvarsson verði dæmdur í átta til tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi vegna peningaþvættis sem hann er ákærður fyrir. Aðalmeðferð í máli Júlíusar Vífils fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.



Júlíus Vífill hafði ætlað sér að ávarpa dóminn við upphaf aðalmeðferðar í dag en Arngrímur Ísberg, dómari í málinu, taldi það ekki koma til greina þegar í ljós kom að ávarp Júlíusar var fimm blaðsíður að lengd. Sagði dómarinn að ekki væri gert ráð fyrir að menn væru að halda ræður áður en aðalmeðferð hefst.



Embætti héraðssaksóknara sakar Júlíus um að hafa hafa þvættað 49 til 57 milljónir króna sem er talinn vera ávinningur af meintum skattalagabrotum hans fyrir meira en áratug. Í ákærunni yfir Júlíusi kemur fram að hann eigi að hafa, á árunum 2010 til 2014, geymt á bankareikningi sínum hjá UBS banka á Ermasundseyjunni Jersey, andvirði 131 til 146 milljóna króna, í Bandaríkjadölum, evrum og sterlingspundum.



Við aðalmeðferð sagði Júlíus Vífill að þeir fjármunir sem hafi verið geymdir á bankareikningum hans erlendis hafi hann fengið sem þóknunargreiðslur og umboðslaun vegna starfa sinna hjá Ingvari Helgasyni, hvar hann hóf störf árið 1982 og starfaði í 22 ár.

Taldi fjármunina ekki fram sem tekjur

Júlíus hefur viðurkennt að hann hafi geymt umræddar upphæðir á bankareikning sínum í UBS banka á Jersey og að hafa árið 2014 fært féð inn á reikning hjá Julius Bär í Sviss sem tilheyrði vörslusjóðnum Silwood Foundation. Rétthafar vörslusjóðsins voru Júlíus, eiginkona hans og börn.



Aðspurður um hvers vegna hann hafi farið þá leið að leggja féð inn á vörslusjóð sagði Júlíus að hann hefði talið það ágætis leið til að geyma og vernda þessa fjármuni og að ýmsir kostir hefðu fylgt því.



Júlíus lýsti því að á áttunda áratugnum hafi það tíðkast að nota umboðsgreiðslur í viðskiptum vegna óðaverðbólgu sem var á Íslandi.



Júlíus sagðist fyrir dómi ekki hafa talið fjármunina fram sem tekjur þegar hann fékk þær greiddar.

Leikurinn gerður til að komast hjá því að borga skatta

Saksóknari vísaði í skýrslur Júlíusar hjá skattrannsóknarstjóra þar sem hann sagði að slíka viðskiptahætti myndi hann ekki stunda í dag. Hann hafi ekki tjáð sig um meint brot hjá lögreglu en fyrir dómi hafi hann meira og minna staðfest frásögn sína hjá skattrannsóknarstjóra um uppruna fjármunanna, þeir hafi ekki verið taldir fram og ekki hafi verið borgaður tekjuskattur í framhaldinu.



„Hér er um að ræða íslenskt félag, Íslending sem búsettur er á Íslandi og skattskyldur á Íslandi og hann fær fjármunina fyrir starfsemi sína fyrir félagið,” sagði Björn Þorvaldsson saksóknari.



„Það liggur fyrir að það voru ekki greiddir skattar af þessum fjármunum. Þvert á móti bendir til þess að leikurinn hafi verið gerður til að komast hjá því að borga skatta.”

Rakti málið til fjölmiðlaumfjöllunar

Saksóknari telur að um sé að ræða skipulagt peningaþvætti. Hæstiréttur hafi gefið fordæmi fyrir því að hart beri að taka á slíkum brotum og að þau séu ósvífin. Saksóknari telur ekki unnt að skilorðsbinda refsingu og fer hann fram á 8-12 mánaða fangelsi.



Verjandi Júlíusar sagið málið fyrir margra hluta sakir sérstakt. Til dæmis vegna þess að það megi rekja til fjölmiðlaumfjöllunar, en mál Júlíusar Vífils kom fyrst fram eftir umfjöllun um Panama-skjölin svokölluðu. Telur verjandi Júlíusar að í þeirri umfjöllun hafi verið gagnrýnislaust byggt á rakalausum ósannindum. Sagði hann ítrekað vísað til fjölmiðlaumfjöllunar í greinargerð sem fylgi ákæru og að ákvörðun um að hefja rannsókn verið tekin á grundvelli fjölmiðlaumfjöllunar. Þess má geta að nafnlaus upptaka þar sem Júlíus heyrist ræða fjármunina við þáverandi lögfræðings inn Sigurð G. Guðjónsson var send skattrannsóknaryfirvöldum sem og fjölmiðlum.



Nefndi hann einnig að einn þeirra sem rannsökuðu málið hafi verið varaþingmaður Vinstri grænna og hafi opinberlega tjáð skoðun sína á skattalagabrotum og aflandsreikningum og hann hafi því verið vanhæfur.



Verjandi Júlíusar telur óumdeilanlegt að frumbrot Júlíusar, það er að segja að hafa skotið undan skatti, séu fyrnd, ef þau geti á annað borð verið sönnuð, og þar af leiðandi sé ekki hægt að dæma hann fyrir peningaþvætti. SAksóknari er þessu ósammála og benti á að í ákæru sé talað um brot sem hafi átt sér stað á árinum 2010 og 2014, og því séu þau ekki fyrnd.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×