Lífið

Arna Ýr á von á sínu fyrsta barni

Sylvía Hall skrifar
Spennandi tímar framundan hjá þessu unga pari.
Spennandi tímar framundan hjá þessu unga pari. Instagram
Arna Ýr Jónsdóttir, fyrrum Ungfrú Ísland og Miss Universe Iceland, á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Vigni Þór Bollasyni. Arna Ýr tilkynnti óléttuna á Instagram-síðu sinni fyrr í kvöld.

„Lítið kraftaverk á leiðinni í júní, lífið er of gott við okkur,“ skrifar Arna Ýr undir myndina þar sem parið heldur á sónarmyndum.



 
 
 
View this post on Instagram
One little miracle on it’s way in June, life is good to us

A post shared by ARNA YR (@arnayr) on Dec 8, 2018 at 9:52am PST



Þetta er fyrsta barn parsins og bíða þau spennt eftir frumburðinum. Þá hefur Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstjóri Miss Universe Iceland, óskað parinu til hamingju og fagnar því að leyndarmálið sé orðið opinbert.

Manúela er greinilega spennt yfir óléttunni.Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.