Real upp í fimmta sætið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. desember 2018 21:45 vísir/getty Real Madrid vann sinn sjötta leik af síðustu sex þegar Valencia mætti á Santiago Bernabeu í La Liga deildinni á Spáni í kvöld. Fyrir leikinn hefði Valencia, sem sat í 13. sæti, getað farið upp fyrir Real Madrid í sjöunda sætinu með sigri. Í staðinn fór Real upp í fimmta sætið og er nú aðeins þremur stigum á eftir toppliði Sevilla sem þó á leik til góða. Heimamenn komust yfir strax í upphafi þegar Daniel Wass skoraði sjálfsmark. Karim Benzema missti boltann í vítateig Valencia en Dani Carvajal vann hann aftur og sendi fyrirgjöf inn í teiginn. Wass var fyrsti maður á boltann en misreiknaði skallann sinn algjörlega og sendi skallann í eigið net. Real var með völdin í fyrri hálfleik án þess að skapa mikið af fallegum færum. Í seinni hálfleik voru það gestirnir sem virtust líklegri, en markið kom þó frá Real. Skyndisókn frá eigin vítateig endaði með fyrirgjöf frá Benzema sem Lucas Vazquez skilaði í netið. Leik lokið. Valencia ógnaði markinu lítið sem ekkert og sigur Real tryggður. Spænski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti