Lífið

Vatnið fraus í brúsanum: „Þetta var svolítið bara að lifa af“

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Elísabet Margeirsdóttir er sannkallaður ofurhlaupari.
Elísabet Margeirsdóttir er sannkallaður ofurhlaupari.
Ofurhlauparinn Elísabet Margeirsdóttir er þegar byrjuð að huga að næstu áskorun eftir að hafa lokið Ultra Gobi 400 hlaupinu í október, þar sem hún hljóp rúma 400 kílómetra á aðeins fjórum sólarhringum. Landsmenn fylgdust grannt með framvindu mála hjá Elísabetu meðan á hlaupinu stóð, en hún segir þennan mikla áhuga í raun hafa komið sér á óvart. Á allri þessari leið kom aldrei upp í hugann að gefast upp, en hún viðurkennir þó að vissir kaflar hafi tekið mikið á – þá sérstaklega þegar hlaupið var yfir skarð í um fjögur þúsund metra hæð.

Vatnið og maturinn fraus

„Ég var svo flott að fara yfir hæsta punktinn yfir hánóttu. Það var rosalega kalt í þessari hæð og þá t.d. fraus allt vatnið í brúsanum. Allur maturinn og orkan sem ég var með var orðin svo grjóthörð að það var ekkert hægt að borða,“ segir Elísabet.

Þetta hljómar alveg hræðilega.

„Já, þetta var einn af erfiðustu punktunum. Þetta var svolítið svona að lifa af.“

Ekki bara fyrir ofurmenni

Þrátt fyrir að hafa eytt síðustu vikum að einhverju leyti í að ná sér niður eftir afrekið er hún strax byrjuð að huga að næstu áskorun, einhverju jafnvel stærra en Gobi-hlaupinu. Elísabet segir mikið fagnaðarefni hve mikil vitundarvakning hafi orðið um hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl undanfarið, en ítrekar mikilvægi þess að fara ekki of hratt af stað. Aftur á móti þvertekur hún fyrir að ofurhlaup á borð við það sem hún lauk í Kína sé aðeins á færi einhvers konar ofurmenna.

„Ef ég get þetta þá geta þetta allir.“

Rætt verður við Elísabetu í Íslandi í dag klukkan 18:55, strax eftir kvöldfréttir.


Tengdar fréttir

Elísabet nálgast endamarkið í eyðimörkinni

Elísabet Margeirsdóttir, næringarfræðingur og ofurhlaupari, nálgast nú óðfluga endamarkið í Góbí-eyðimerkurhlaupinu sem hún tekur þátt í þessa dagana.

Elísabet komin í mark á mettíma

Elísabet Margeirsdóttir er komin í mark í Góbí-eyðimerkurhlaupinu. Elísabet er fyrsta konan til að klára hlaupið á undir 100 klukkustundum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.