Dembele bjargaði stigi fyrir Barcelona í toppslagnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dembele og Suarez fagna jöfnunarmarkinu.
Dembele og Suarez fagna jöfnunarmarkinu. Vísir/Getty
Ousmane Dembele bjargaði stigi fyrir Barcelona sem gerði 1-1 jafntefli við Atletico Madrid í toppbaráttuslag í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Lengi vel var markalaust í leiknum en Diego Costa kom Atletico Madrid yfir er þrettán mínútur voru eftir af leiknum og flest stefndi í sigur Atletico.

Í uppbótartíma var það hins vegar Ousmane Dembele sem bjargaði stigi fyrir Barcelona eftir undirbúning Argentínumannsins Lionel Messi. Lokatölur 1-1.

Barcelona er á toppi deildarinnar með 25 stig en stigi á eftir er Atletico Madrid í öðru sætinu. Real Madrid er í sjötta sætinu með tuttugu stig, fimm stigum á eftir Börsungum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira