Tónlist

Föstudagsplaylisti Heklu Magnúsdóttur

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Tónlist Heklu er oft á tíðum drungaleg.
Tónlist Heklu er oft á tíðum drungaleg. Verði Ljós
Umsjón lagalistans í dag er í höndum Heklu Magnúsdóttur, sem hlýtur að teljast einn fremsti þeremín-leikari þjóðarinnar.

Hekla gekk til liðs við brimbrettarokkssveitina Bárujárn árið 2008 og setti þeremín-leikur hennar sterkan svip á hljóðheim sveitarinnar. 

Hún vinnur nú að tónlist undir eigin nafni sem byggir að mestu á þeremíni og söng. Árið 2014 kom út smáskífa sem fékk glimrandi viðtökur og nú í september kom út plata í fullri lengd sem ber nafnið Á. 

Hér má heyra ábreiðu hennar á sálminum Heyr himna smiður, sem finna má á plötunni.

Á næstunni verður Hekla með tvennar vinnustofur og fyrirlestra í Þýskalandi um grafíska nótnaskrift og nýjar nálganir á þeremíninu auk þess sem að hún spilar á nokkrum tónleikum þar í landi á næstu mánuðum, bæði ein og með öðrum listamönnum.

Lagalistann segir hún vera „svona smá föstudagsferðalag.“ Hann sé sniðinn að því að maður komi heim til sín, setjist niður og hugsi aðeins út í liðna viku, hugleiði hana. „Svo peppast maður upp í smá dansgír og svo endar maður kannski bara í ræsinu, ég veit ekki.“

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.