Lífið

Hvetur Maroon 5 til þess að hætta við hálfleikssýningu Super Bowl

Sylvía Hall skrifar
Amy Schumer er óhrædd við að láta í sér heyra og hvetur fólk til þess að sniðganga NFL.
Amy Schumer er óhrædd við að láta í sér heyra og hvetur fólk til þess að sniðganga NFL. Vísir/Getty
Grínleikkonan Amy Schumer hefur birt færslu á Instagram-síðu sinni þar sem hún vekur athygli á kynþáttamisrétti í Bandaríkjunum og spyr sig hvers vegna hvítir leikmenn NFL-deildarinnar krjúpa ekki á hné til þess að sýna leikmönnum á borð við Colin Kaepernick samstöðu. 

Í færslunni segir Schumer að hún hafi tilkynnt starfsmönnum sínum að hún myndi ekki leika í neinni auglýsingu fyrir Super Bowl í ár og hrósar söngkonunni Rihönnu fyrir að hafna tilboði um að sjá um hálfleikssýningu Super Bowl í ár, en hálfleikssýningin er gríðarlega vinsæl um allan heim og þykir stórt tækifæri fyrir tónlistarmenn. 

Sjá einnigHafnaði boði um að troða upp í hálfleik Ofurskálarinnar

Hún segir að henni þætti það mjög jákvætt ef Maroon 5 myndi hætta við að sjá um sýninguna í ár en hljómsveitin var fengin til þess eftir að Rihanna hafnaði tilboðinu. Þá segir Schumer að hafna því að leika í auglýsingum það minnsta sem hún geti gert til þess að sýna samstöðu. 

 
 
 
View this post on Instagram
Friday thought. I wonder why more white players aren’t kneeling. Once you witness the truly deep inequality and endless racism people of color face in our country, not to mention the police brutality and murders. Why not kneel next to your brothers? Otherwise how are you not complicit? I think it would be cool if @maroon5 backed out of super bowl like @badgalriri Did. I personally told my reps I wouldn’t do a Super Bowl commercial this year. I know it must sound like a privilege ass sacrifice but it’s all i got. Hitting the nfl with the advertisers is the only way to really hurt them. I know opposing the nfl is like opposing the nra. Very tough, but don’t you want to be proud of how you’re living? Stand up for your brothers and sisters of color. And the hottest thing a guy can do is get down on one knee. Not to propose but to reject the treatment of his teammates by this country. Anyone who says its disrespectful to our military please read up on the fact that a lot of veterans are proud of what @kaepernick7 is doing and fully support him. What are your thoughts?

A post shared by @ amyschumer on Oct 19, 2018 at 8:11am PDT



Með færslunni vill Schumer vekja fólk til umhugsunar um kynþáttahatur í Bandaríkjunum en líkt og frægt er orðið mótmælti Colin Kaepernick lögregluofbeldi og morðum með því að krjúpa á hné þegar bandaríski þjóðsöngurinn var spilaður fyrir leiki sem reitti marga til reiði, meðal annars Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hún segir NFL vera álíka valdamikið og NRA, samtök byssueigenda í Bandaríkjunum, og því sé erfitt að mótmæla en það sé það eina rétta í stöðunni að hennar sögn. 


Tengdar fréttir

Sjáðu Super Bowl hálfleikssýningu Justin Timberlake

Philadelphia Eagles varð í nótt NFL-meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 41-33 sigur á fráfarandi meisturum New England Patriots í Super Bowl, úrslitaleik ameríska fótboltans, í Minneapolis í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.