Lífið

Gamlingjar stýra tískunni

Elín Albertsdóttir skrifar
Frá sýningu Dior á tískuviku í París.
Frá sýningu Dior á tískuviku í París.
Coco Chanel var sannkallaður brautryðjandi í kventísku. Nútímaleg viðhorf hennar gerðu hana að einni mikilvægustu persónu í fatahönnun á 20. öldinni. Hún setti ný viðmið í fegurð og glæsileika sem enn í dag hafa áhrif. Á þessum árum voru frægustu fatahönnuðir dagsins í dag að fæðast. Þar má nefna Karl Lagerfeld sem er 85 ára, Valentino, 86 ára, Giorgio Armani, 84 ára, Ralph Lauren, 79 ára, Calvin Klein, 76 ára, Issey Miyake, 80 ára, og Pierre Cardin, 96 ára. Það er í rauninni stórmerkilegt hversu langa sögu þessir herramenn eiga í tískuheiminum.

Næsta kynslóð karlkyns tískuhönnuða er líka farin að eldast, það eru til dæmis Jean Paul Gaultier, 66 ára, Tommy Hilfiger, 67 ára, Tom Ford, 57 ára, Michel Kors, 59 ára, og Marc Jacobs, 55 ára.

Margar konur koma líka að tískunni með afgerandi hætti en fáar hafa verið jafnlengi að og herrarnir. Vivienne Westwood, 77 ára, hefur skapað sér fágaðan stíl, sömuleiðis Jil Sander, 75 ára, Diane von Furstenberg, 72 ára, og Vera Wang, 69 ára, svo einhverjar séu nefndar. Sonia Rykiel hafði sömuleiðis mikil áhrif á tískuheiminn ásamt Yves Saint Laurent og Oscar de la Renta sem öll eru látin.

Vissulega eru yngri konur á borð við Donnu Karan, Victoriu Beckham og Stellu McCartney sannarlega vinsælar í tískuheiminum.

París hefur alltaf verið alþjóðleg miðstöð tískunnar og þar var fyrsta tískuvikan haldin. Eftir 1950 breyttist tískan mikið og sérstakur unglingastíll leit dagsins ljós. Hippa-tískan birtist á sjöunda áratugnum og gallabuxur urðu allsráðandi hjá báðum kynjum. Um leið og tískan varð almennari hjá venjulegum borgurum fjölgaði tískuhúsum en ekki síður tískubúðum með ódýrari tískuvarning. Frægustu merkin halda þó uppi heiðri nýjustu tískunnar hverju sinni og eiga sér fjölda aðdáenda og fastra viðskiptavina, ekki síst í heimi ríka og fræga fólksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.