Lífið

Sporðdrekinn kleip Audda á leiðinni út úr kassanum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auðunn Blöndal náði ekki 45 sekúndum.
Auðunn Blöndal náði ekki 45 sekúndum.
Þeir Auddi og Steindi tóku vægast sagt erfiðri áskorun í síðasta þætti af Suður-ameríska draumnum og var hún í anda Fear Factor þáttanna sem slógu í gegn á sínum tíma.

Þeir voru boðaðir á sveitabæ inni í miðri Kólumbíu. Verkefniði var að setja höfuðið inn í glerkassa og leyfa sporðdrekkum að klifra upp og niður andlit þeirra. Til að klára áskorunina þurftu þeir að vera inni í kassanum í 45 sekúndur.

Auddi var sá fyrsti til að prófa áskorunina og má sjá hér að neðan hvernig gekk hjá honum.

Síðar í þættinum fékk Steinþór að spreyta sig og náðu þeir í sameiningu að klára áskorunina en hvorugur þeirra náðu 45 sekúndum, þeir náðu þeim tíma samanlagt. Einn spordrekinn kleip aðeins í Auðunn þegar hann var á leiðinni út úr kassanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.