Lífið

Djúsara svelgdist á við gagnrýni Egils

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Arnar Guðbrandsson vill ekki stressa sig of mikið á orðum Egils Einarssonar.
Jón Arnar Guðbrandsson vill ekki stressa sig of mikið á orðum Egils Einarssonar. vísir/gva
„Þetta er mjög gott fyrir mann og gefur fólki mikla orku, svo það er ekki hægt að alhæfa svona. Ég skil alveg húmorinn hjá þessum strákum og er nú ekki að missa mig yfir þessu,“ segir Jón Arnar Guðbrandsson, eigandi Pure Deli, sem selur töluvert af djúsum og segir Jón að þeir séu heldur betur hollir fyrir mann.

Egill Einarsson gagnrýndi djúsakúra heilmikið í Brennslunni í morgun og talaði um að þeir væri í raun aðeins gott Nígeríusvindl.

„Þetta eru gríðarlega næringamiklir djúsar sem við höfum upp á að bjóða og hafa þeir hjálpað fjölmörgum að létta sig og til að mynda minnkar sykurþörfin hjá þeim sem drekka þá reglulega,“ segir Jón og bætir við að hann hafi sjálfir lést töluvert með því að drekka svona djúsa.

Svona líta djúsarnir hjá Jóni út.
Hann segir að djúsarnir sem hans fyrirtæki bjóði upp á séu mjög næringarmiklir og fjarri frá því að vera eitthvað Nígeríusvindl.

„Það gefur auga leið að ef þú ert að drekka djús sem er með avocado, engifer, spínati, sítrónu og mangó þá eru þeir hollir fyrir þig. Svona djúsar geta vel hjálpað  manni að hreinsa til  í kerfinu, enda erum við ekki að tala um djúsa sem eru með bönunum, jarðaberum og öðru sykruðu. Þeir innihalda ávaxtasykur sem er bara gott í hófi og við reynum að lágmarka slíkt.“

En getur maður lifað á því að drekka aðeins djúsa?

„Ég held að maður geti það í raun og veru. Það er hægt að útbúa drykki sem eru með allt sem þú þarft og því sé ég ekki að það sé óraunhæft. Það kjósa aftur á móti ekki margir að gera það, sem ég skil vel.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.