Lífið

Rassálfar í leikhúsinu

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Leikritið um Ronju ræningjadóttur verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag.
Leikritið um Ronju ræningjadóttur verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag.
Leikritið um Ronju ræningjadóttur verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag. Leikritið er byggt á einni vinsælustu skáldsögu Astrid Lindgren og Selma Björnsdóttir fer með leikstjórn. Söngkonan Salka Sól Eyfeld er í hlutverki hinnar hugrökku Ronju.

Í leikritinu fara alls fjórtán börn með hlutverk. Þau leika meðal annars skondna rassálfa, hina ógnvænlegu grádverga og yrðlinga skógarins. Börnunum er skipt í tvo hópa til að minnka álagið á þeim en nú þegar er uppselt á þrjátíu sýningar.

Nokkur barnanna eru í förðun og hárgreiðslu fyrir lokaæfingu á verkinu þegar blaðamann og ljósmyndara ber að garði. Þeirra á meðal er Hrafnhildur Hekla Hólmsteinsdóttir, ellefu ára. „Ég leik rassálf, yrðling og grádverg. Þannig að ég skipti oft um gervi, en mér finnst bara skemmtilegt að láta greiða mér og svoleiðis,“ segir Hrafnhildur sem segir æfingaferlið hafa verið mikið fjör. „Þetta er búið að vera svo gaman. Það er skemmtilegast að vera á rennsli, sýna allt verkið í einu. Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að standa á sviðinu fyrir gesti. Ég er búin að eignast marga vini hér,“ segir Hrafnhildur sem segir alls ekki erfitt að vera leikari.

Við hlið Hrafnhildar situr Daði Víðisson, ellefu að verða tólf ára. Það er verið að leggja lokahönd á hárgreiðsluna. „Ég er rassálfur og grádvergur í sýningunni, mér finnst skemmtilegast að leika rass­álfana, það eru virkilega skemmtilegar senur,“ segir Daði sem kveður það mikla vinnu að læra hlutverk undir svona stóra sýningu. Hann er nemandi í Melaskóla. „Auðvitað missi ég smá úr skóla, en það er líka skóli að vera hér,“ segir hann.

Mikael Guðmundsson, 10 ára, gengur í Vesturbæjarskóla og segir flest börnin bregða sér í mörg gervi. „Ég leik rassálf, grádverg og yrðling. Það er gaman að fara í svona mörg hlutverk og það er gaman að leika rassálf. Þeir eru mikið inni á sviðinu og þeir spyrja margra spurninga. Þeir spyrja í sífellu, af hverju, af hverju? Þeir eru svolítið fyndnir, finnst mér.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.