Tónlist

Heimsklassa djasskonur spila

Gunnþórunn Gunnarsdóttir skrifar
Drottning dönsku djasssenunnar, Marilyn Mazur, ásamt tíu kvenna hljómsveit sinni en hún var í hljómsveit goðsagnarinnar Miles Davis forðum daga.
Drottning dönsku djasssenunnar, Marilyn Mazur, ásamt tíu kvenna hljómsveit sinni en hún var í hljómsveit goðsagnarinnar Miles Davis forðum daga.
Sunnudaginn 2. september verður Jazzhátíð Reykjavíkur þjófstartað með skemmtilegu „jam-session“ á Bryggjunni Brugghúsi kl. 20 þar sem aðgangur er ókeypis. Jazzhátíðin sjálf hefst hins vegar miðvikudaginn 5. september með skrúðgöngu frá Lucky Records við Hlemm kl. 17 og gengið verður að Borgarbókasafninu þar sem hátíðin verður formlega sett.

Það sem er nýtt í ár er að dagskráin færist úr Hörpu yfir á fleiri staði en einnig er í ár lögð áhersla á fleiri konur í djasstónlist. Sex konur eru í fararbroddi atriða á hátíðinni í ár auk Rósu Guðrúnar Sveinsdóttur sem leiðir skrúðgönguna í ár.

„Í dag er mikið hugað að jöfnum möguleika kynjanna og í djassgeiranum eru konur í miklum minnihluta. Þetta á ekki bara við hér á Íslandi, þó svo að við séum kannski á eftir samanburðarþjóðum í þessum málum. Við í stjórn hátíðarinnar trúum því að með því að flytja inn heimsklassa kvenkyns hljómleikafólk gefum við kvenkyns tónlistarnemendum fyrirmyndir. Stelpur spila líka djass,“ segir Leifur hátíðarhaldari og tónlistarmaður.



Jazzhátíð í Reykjavík
Virku dagana fara tónleikar fram í Hannesarholti, Iðnó og Tjarnarbíói sem eru í göngufæri hvert við annað en helgardagskráin fer fram á Grand Hóteli og í Gömlu kartöflugeymslunum.

Meginuppistaðan á hátíðinni er það helsta úr íslensku djasssenunni, en einnig eru flutt inn nokkur atriði frá útlöndum.

Hægt verður að kaupa staka miða á alla viðburði á Jazzhátíð en einnig eru í boði afsláttarpakkar á 4, 6 eða 8 tónleika. Miðasala fer fram á tix.is og dagskrána í heild sinni má finna á reykjavikjazz.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.