Lífið

Leita að Nutella smökkurum

Andri Eysteinsson skrifar
Súkkulaði og heslihnetu góðgætið Nutella hefur farið sigurför um heiminn
Súkkulaði og heslihnetu góðgætið Nutella hefur farið sigurför um heiminn Vísir/EPA
Sælgætisframleiðandinn Ferrero leitar nú að venjulegu fólki til að smakka eina frægustu vöru sína, súkkulaði áleggið, NutellaCBS greinir frá.

Ferrero sem framleiðir auk Nutella hina frægu Ferrero Rocher mola leitar að 60 manns til að starfa hjá fyrirtækinu í höfuðstöðvum þess í Alba í norður ítalska héraðinu Fjallalandi (ít. Piemonte).

Ekki er neinnar reynslu krafist en umsækjendur mega þó ekki hafa fæðuofnæmi og verða að hafa grunntölvukunnáttu. Hinir 60 útvöldu verða sendir á tveggja mánaða námskeið í september áður en þeir sem standast námskeiðið verða ráðnir til langs tíma í hlutastarf, 2 tímar á viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.