Lífið

Úr kjallaranum yfir í glæný hljóðver með útsýni yfir Laugardalinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Starfsmenn FM957, Bylgjunnar og X-977 eru sáttir við flutninginn.
Starfsmenn FM957, Bylgjunnar og X-977 eru sáttir við flutninginn.
Í dag hófu Bylgjan, FM957 og X-977 útsendingar sínar úr glænýjum hljóðverum í húsnæði Sýnar við Suðurlandsbraut 8.

Áður hafði starfsemi útvarpsstöðvanna verið í Skaftahlíðinni og voru eldri hljóðverin í kjallaranum við Skaftahlíð 24. Nú starfa útvarpsmennirnir í hljóðveri með fínu útsýni yfir Laugardalinn og er það vinnuumhverfi sem þekkist illa á útvarpssviði Sýnar.

Þráinn Steinsson hefur verið tæknimaður á Bylgjunni í fjöldamörg ár og er hann spenntur fyrir komandi tímum.

„Hljóðverið var ekki fært að þessu sinni, það var bara byggt nýtt,“ segir Þráinn í samtali við kollega sína þá Heimi Karlsson og Gulla Helga.

Hlustendur finna engan mun

„Það var kominn tími á endurnýjum á búnaði og var það gert í leiðinni. Það hafði það í för með sér að við gátum flutt í tilbúið stúdíó án þess að raska miklu. Hér er nýtt spilunarkerfi á stöðvunum sem er mikil uppfærsla á því kerfi sem við vorum að vinna með. Kerfið á eflaust eftir að valda hnökrum fyrstu dagana.“

Ómar var mjög sáttur við nýja hljóðver X-ins.vísir/vilhelm
Hann segir að hlustendur eigi ekki eftir að heyra neinn mun á útsendingu útvarpsstöðvanna, en símkerfið er nýtt.

„Þetta er bara spennandi og skemmtilegir tímar framundan. Ég hef gott útsýni hér yfir Esjuna, Akrafjallið og Laugardalinn,“ segir Þráinn sem var örlítið stressaður fyrir fyrstu útsendinguna í morgun. Árið 2006 flutti Bylgjan, FM957 og X-ið frá Lynghálsi í Skaftahlíðina. Nú 12 árum síðar eru stöðvarnar komnar á Suðurlandsbraut. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, skellti sér á Suðurlandsbrautina í dag og fangaði þessar myndir úr nýjum hljóðverum útvarpsstöðva Sýnar.

Siggi Hlö og Ágúst Héðinsson yfirmaður útvarpssviðs Sýnar.vísir/vilhelm
Yngvi Eysteinsson á FM957.Vísir/vilhelm
Þráinn er mjög sáttur við nýtt hljóðver.vísir/vilhelm
Rúnar Róberts mættur á vaktina til að kenna Sigga Hlö á græjurnar.Vísir/vilhelm
Hér að neðan má sjá nokkur myndbrot sem tekin voru upp inni í nýju hljóðveri Bylgjunnar í morgun og samtöl við reglulega gesti Í Bítinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.