Lífið

Hinn þrífætti Bangsi Ragnheiðar Gröndal enn ekki kominn í leitirnar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bangsi hefur veitt Ragnheiði innblástur í tónlistinni en lagið Bangsi af plötu hennar Aristocat Lullaby er einmitt samið um köttinn.
Bangsi hefur veitt Ragnheiði innblástur í tónlistinni en lagið Bangsi af plötu hennar Aristocat Lullaby er einmitt samið um köttinn. Mynd/Samsett
Ekkert hefur spurst til Bangsa, þrífætts heimiliskattar tónlistarkonunnar Ragnheiðar Gröndal, síðan í júní. Mikill söknuður ríkir innan fjölskyldunnar vegna Bangsahvarfsins og hefur fundarlaunum verið heitið.

„Dagana áður en hann hvarf var búin að vera ilmvatnslykt af honum og hann lét sig hverfa í einn og einn sólarhring áður en hann hvarf svo alveg,“ segir Ragnheiður en henni þykir líklegt að Bangsi hafi því verið að stelast í heimsóknir til fólks í hverfinu áður en hann týndist. Hún vonist því til að ekkert hafi hent Bangsa.

Ragnheiður Gröndal, tónlistarkona.Mynd/Salar Baygan
„Ég trúi því ekki að það hafi eitthvað komið fyrir. Ég held að hann sé einhvers staðar hjá einhverju fólki, en kannski er það bara mömmuhjartað að tala.“

Bangsi er þrettán ára en hefur verið hluti af fjölskyldunni í níu ár. Hann lenti í slysi þegar hann var fimm ára sem olli því að fjarlægja þurfti annan framfótinn.

„En hann hefur ekkert látið það stoppa sig. Hann er mikill karakter og mjög ákveðinn köttur.“

Ragnheiður segir að fjölskyldan sé enn engu nær um það hvar Bangsi sem nú hefur verið týndur í heilan mánuð, sé niðurkominn. Hún segist þó ótrúlega þakklát öllum sem aðstoðað hafa við leitina að Bangsa en fjölmargir hafa boðið fram aðstoð sína og deilt tilkynningu um hvarf kattarins á Facebook. 

Þá hafa Ragnheiður og maður hennar, tónlistarmaðurinn Guðmundur Pétursson, heitið 25 þúsund krónum í fundarlaun hverjum þeim sem kemur Bangsa heim. Ljóst er að Bangsi er heimilismönnum einkar kær, og þá sérstaklega Ragnheiði sjálfri, en hún samdi um hann samnefnt lag á plötunni Aristocat Lullaby sem kom út árið 2011.

Hér að neðan má svo sjá fleiri myndir af Bangsa sem Ragnheiður birti í Facebook-færslu um hvarf hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.