Lífið

Ætlaði að fyrirfara sér vegna viðbragðanna við Jar Jar Binks

Gunnar Hrafn Jónsson skrifar
Aðeins eitt dæmi af fjölmörgum um þá stöðu sem Jar Jar Binks hefur meðal aðdáenda Stjörnustríðsmyndanna
Aðeins eitt dæmi af fjölmörgum um þá stöðu sem Jar Jar Binks hefur meðal aðdáenda Stjörnustríðsmyndanna Vísir/Getty
Leikarinn, sem ljáði Star Wars persónunni Jar Jar Binks rödd sína og hreyfingar, íhugaði að fyrirfara sér eftir öldu haturs og neikvæðni sem fylgdi í kjölfar myndarinnar The Phantom Menace árið 1999.

Ahmed Best var 25 ára þegar hann tók hlutverkið að sér og var þetta fyrsta stóra tækifærið hans. Phantom Menace segir fyrsta kaflann í Star Wars sögunni og leikstjórinn George Lucas batt miklar vonir við persónu Jar Jar Binks.

Jar Jar átti að vera fyndinn og afslappaður í fyrstu myndinni en smám saman kæmi í ljós að hann leyndi heldur betur á sér.

Ein kenning, sem er afar vinsæl meðal Star Wars nörda, er að Jar Jar hafi í raun verið hluti af hinni dökku hlið og aðstoðað hinn illa Palpatine beint eða óbeint við að ná völdum og breyta Anakin Skywalker í Darth Vader.

Aldrei var hins vegar farið nánara í saumana á þeirri atburðarás, hatrið sem beindist gegn persónu Jar Jar Binks var svo yfirgengilegt að hann kom mjög lítið við sögu í næstu myndum.

Ahmed Best greinir nú frá því að þetta hafi allt tekið sinn andlega toll. Best birti mynd af sér með ungum syni sínum á Twitter og sagði að brátt yrðu liðnir tveir áratugir frá því að hann var á barmi sjálfsvígs vegna þeirra viðbragða sem Jar Jar Binks vakti. Ferillinn hafi aldrei verið samur síðan.

Hann hafi hins vegar komist lifandi í gegnum erfiðleikana og verðlaunin séu fólgin í syninum sem hann eigi í dag. Segist Best vera að íhuga að segja alla söguna í eins manns sviðssýningu.

Fjölmargir hafa sent Best baráttukveðjur á Twitter. Þeirra á meðal er Frank Oz sem lék hinn dularfulla Yoda í tveimur myndum. Segist Oz ekkert skilja í þeim harkalegum viðbrögðum sem myndin fékk á sínum tíma þar sem Jar Jar Binks sé alveg frábær karakter.

Nokkrir hafa einnig beðist afsökunar á að hafa sleppt sér í neikvæðni á sínum tíma. Aðrir segja þetta mikilvæga áminningu um að leikarar og aðrir í skemmtanaiðnaðinum séu innst inn venjulegt fólk með sömu tilfinningar og allir aðrir. Það sé ekki verjandi að úthúða fólki eða leggja það í einelti bara vegna þess að manni mislíki framlag þeirra til menningar og lista.

Best segist meðal annars hafa verið stoppaður úti á götu af fólki sem sakaði hann um að eyðileggja æsku sína með persónu Jar Jar Binks í Star Wars. Það sé erfitt að sitja undir slíku sem 25 ára óreyndur leikari sem aldrei hefur verið í sviðsljósinu áður.

Að lokum ber að nefna að George Lucas var af mörgum sakaður um rasisma þar sem persóna Jar Jar Binks talar með örlítið karabískum hreim og þykir minna á gamlar staðalímyndir af blökkumönnum.

Það hefur Lucas alltaf þvertekið fyrir, hann segir innblásturinn aðallega hafa komið frá Guffa í Walt Disney myndasögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.