Lífið

Handtekinn í London og kemur ekki fram á Secret Solstice

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Rapparinn J Hus átti að koma fram í kvöld á Secret Solstice
Rapparinn J Hus átti að koma fram í kvöld á Secret Solstice Vísir/Getty
Rapparinn J Hus var handtekinn nærri verslunarmiðstöð í London á fimmtudaginn með hníf. Rapparinn átti að koma fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í kvöld en ljóst er að ekki verður af því. Lögreglumenn stoppuðu bifreið sem J Hus var í vegna gruns um að hann væri með eggvopn. Honum var neitað um lausn gegn tryggingu og mun því verða í haldi þangað til að mál hans verður tekið fyrir.

Björn Teitsson fjölmiðlafulltrúi tónlistarhátíðarinnar staðfestir að hann muni ekki koma fram.

„Ég get staðfest það að hann kemur ekki fram. Hann er í varðhaldi í London,“ segir Björn. Rapparinn átti að koma fram í kvöld kl. 21.30 í Gimla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.