Lífið

John Travolta og Hildur Björns slógu á létta strengi á 101 Hótel

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hildur Björns hitti Travolta á 101 í gær.
Hildur Björns hitti Travolta á 101 í gær.
Leikarinn John Travolta skemmti sér á hótelbarnum 101 í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Hann er nýkominn til landsins eftir að hafa verið á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Að sögn sjónarvotts var Travolta mjög rólegur úti að borða með fjölskyldunni á 101 og gisti þar í nótt.

Ástæðan fyrir heimsókn hans til landsins var að fjölskyldan millilenti hér á leið sinni til Bandaríkjanna frá Cannes.

Hildur Björnsdóttir sem skipar annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hitti leikarann á 101 í gærkvöldi og birtir Sjálfstæðisflokkurinn myndband af þeim tveim saman á Instagram reikningi flokksins. Þar blandar Travolta sér í íslensk stjórnmál.


Tengdar fréttir

Travolta kom til Íslands úr afmæli

Þegar John Travolta lenti einkaþotu sinni á Keflavíkur­flugvelli fyrr í vikunni var hann á heimleið eftir að hafa verið viðstaddur vísindakirkjuathöfn á Englandi ásamt eiginkonu sinni, Kelly Preston. Þau létu óvænt sjá sig á 25 ára afmæli alþjóðlegra samtaka Vísindakirkjunnar eftir að hafa framan af árinu syrgt son sinn Jett, sem lést í janúar aðeins sextán ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.